Nætursund í Laugardalslaug

Laugardalslaug.
Laugardalslaug.

Borgaryfirvöld hafa ákveðið að efna til svokallaðrar sundvöku í Laugardalslauginni dagana 21-26 júlí næstkomandi. Á samráðsvettvanginum Betri Reykjavik kom fram sú hugmynd að hafa sólarhringsopnun í einni sundlaug í Reykjavík. Mikill stuðningur var við tillöguna og því ákváðu borgaryfirvöld að gera tilraun með sundvöku í Laugardalslaug í eina viku.

Á sundvökunni verður Laugardalslaugin opin í fimm nætur frá og með miðvikudeginum 21. júlí frá kl 6.30 til mánudagsins 26. júlí til kl. 22.30.

Gjald fyrir sundgesti á sundvöku er 1000 krónur en afsláttar- og árskort gilda. Börn yngri en 16 ára fá ekki aðgang á nóttunni nema í fylgd með fullorðnum og er það í samræmi við útivistarreglur barna í borginni. 

Svo gæti farið, ef vel tekst til, að sundvakan yrði að árlegum viðburði. Öll meðferð áfengis er  stranglega bönnuð í lauginni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert