Háplöntum fækkar í Surtsey
Færri tegundir háplantna fundust í leiðangri vísindamanna til Surtseyjar fyrr í þessum mánuði en fundist í rannsóknarleiðangri í fyrra. Þetta var þriðja árið í röð sem háplöntum fækkaði. Þetta kemur fram í frétt Náttúrufræðistofnunar Íslands um Surtseyjarleiðangurinn 2010.
Alls fundust nú 60 tegundir háplantna á lífi í Surtsey og hafði þeim fækkað um eina frá síðasta ári. „Allt voru þetta tegundir sem áður höfðu fundist í eynni en enginn nýr landnemi kom í leitirnar. Frá árinu 1965 hafa fundist 69 tegundir háplantna í eynni en ekki hafa þær allar náð að nema þar land. Árið 2007 var tímabundnu hámarki náð en þá fundust 65 tegundir á lífi.
Frá þeim tíma hefur tegundum fækkað um eina til tvær á
ári. Það sem vakti einna mesta athygli í ferðinni var að ætihvönn hefur í
fyrsta sinn náð að blómstra í Surtsey,“ segir í frétt Náttúrufræðistofnunar.
Þessi niðurstaða vekur spurningar um hvort hámarki háplantna hafi verið náð og að tekið sé að halla undan fæti hvað fjölda þeirra varðar. „Gróður hafði hins vegar þétt sig og færst út í fuglabyggðinni á suðurhluta eyjarinnar. Varp fugla var með minna móti en hins vegar bar mikið á smádýrum og fundust nýjar tegundir eins og undanfarin ár,“ segir m.a. í frétt Náttúrufræðistofnunar.
Farið var í árlega ferð Náttúrufræðistofnunar Íslands til Surtseyjar dagana 9.-16. júlí 2010. Einnig var komið við í úteyjunum Álsey og Elliðaey. Fjórir starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands voru í leiðangrinum, auk þátttakenda frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Landgræðslunni, Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla.
Leiðangurinn var farinn í samvinnu
við Surtseyjarfélagið og Umhverfisstofnun en Náttúrustofa Suðurlands í
Vestmannaeyjum skipulagði ferðirnar í Álsey og Elliðaey.
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. júlí 2011, Innlent Járnsmiður nemur land í Surtsey
- Laugardagur, 18. júlí 2009, Innlent Smádýralíf blómlegt í Surtsey
- Fimmtudagur, 20. maí 2010, Innlent Eldfellít og heklaít eru nýjar steindir
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent 18 fálkar voru skotnir
- Föstudagur, 2. júlí 2010, Innlent Surtseyjarstofa opnuð í Eyjum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































