Kreppan bitnar á körlum

Mikið atvinnuleysi meðal karlmanna skýrist líklega að hluta til vegna …
Mikið atvinnuleysi meðal karlmanna skýrist líklega að hluta til vegna algers hruns í byggingariðnaði. mbl.is/Eggert

Atvinnutap frá því að kreppan hófst hér á landi hefur ekki skipst jafnt á milli kynjanna. Karlar standa höllum fæti í samanburði við konur þegar allir þættir atvinnuþróunar síðustu tveggja ára eru skoðaðir, að hlutastörfum undanskildum.

Störf á öðrum ársfjórðungi 2010 voru 2.000 fleiri en á sama tíma í fyrra, en öll aukningin varð meðal kvenna. Nettóbreyting á störfum karla var engin. Körlum í fullu starfi fækkaði um 200 á milli ára á meðan körlum í hlutastarfi fjölgaði um 200. Á sama tíma fjölgaði konum í fullu starfi um 1.300 og konum í hlutastarfi um 700.

Þegar staðan nú er borin saman við annan ársfjórðung 2008 er myndin enn dekkri fyrir karlmenn, að því er fram kemur í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag. Á tveimur árum fækkaði körlum í starfi um 11,2 prósent. Þar af fækkaði körlum í fullu starfi um 14,7 prósent en stöðugildum karlmanna fækkaði um 12,8 prósent.

Mælt atvinnuleysi karla mældist á öðrum fjórðungi þessa árs 9,4 prósent en hjá konum 8,0 prósent.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert