Fagna samþykkt ráðherraráðsins

Helgi Magnússon.
Helgi Magnússon. mbl.is

Samtök iðnaðarins fagna samþykkt ráðherraráðs Evrópusambandsins um að hefja viðræður við Ísland um aðild landsins að Evrópusambandinu. Þetta segir í tilkynningu frá samtökunum.

Aðild Íslands að ESB og upptaka evru sem gjaldmiðils í stað krónu hefur verið eitt af helstu stefnumálum SI um árabil.

Helgi Magnússon, formaður SI, segir Samtökin hafa lagt áherslu á málefnalega umræðu um Evrópumálin og hvaða þýðingu aðild hefur fyrir iðnaðinn á Íslandi. „SI munu halda því starfi áfram og leggja sitt af mörkum í samningaferlinu og í umræðu um aðildarsamninginn þegar hann liggur fyrir. Í kjölfar þess ætti þjóðin síðan að kveða upp sinn dóm,“ segir Helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert