Svífa vængjum þöndum inn í veturinn
Útlit er fyrir að það verði nóg um að vera hjá Iceland Express og Icelandair yfir vetrarmánuðina. Almenn jákvæðni hefur hafið sig til flugs og verða flugáætlanir beggja fyrirtækja umfangsmeiri heldur en síðasta vetur. Nýir áfangastaðir bætast jafnframt við, m.a. Innsbruck og München.
„Við sjáum fyrir okkur að veturinn verði góður,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, í samtali við mbl.is. Hann segir ljóst að eldgosið í Eyjafjallajökli hafi leikið flugið grátt og bókanir hafi dregist verulega saman. Staðan sé hins vegar að breytast til batnaðar.
Iceland Express boðar sókn í vetur. Það mun halda áfram að fljúga til New York og þá mun það einnig fljúga til Orlando í Flórída í október. Í desember mun Innsbruck í Austurríki bætast á listann yfir áfangastaði. Þangað verður flogið einu sinni í viku fram í mars, þ.e. þegar skíðatímabilið er í fullum gangi.
Þá verður ferðum til London og Kaupmannahafnar fjölgað, en Matthías segir að til standi að fljúga u.þ.b. 12 sinnum í viku til London.
Aukning hjá Icelandair
Ekki náðist í upplýsingafulltrúa Icelandair við vinnslu fréttarinnar. Það hefur hins vegar komið fram að áætlun Icelandair í vetur verði um 14% umfangsmeiri en hún hafi verið síðasta vetur. Icelandair muni fljúga til alls 15 áfangastaða austan hafs og vestan. Að meðaltali verði 82 flug frá Íslandi í viku á tímabilinu frá nóvember og út mars, eða 10 fleiri en á síðasta vetri.
Helsta breytingin frá fyrra vetri sé að flugferðum verði fjölgað bæði til
borga Evrópu, svo sem Parísar, Frankfurt, Amsterdam og Kaupmannahafnar
og einnig til Seattle, New York og Orlando í Bandaríkjunum. Þá mun flugfélagið fljúga til München í Þýskalandi frá lokum janúar fram til mars, en þetta er í fyrsta sem Icelandair flýgur til borgarinnar.
„Þrátt fyrir miklar sveiflur í rekstrarumhverfinu er útlitið nokkuð bjart og við erum að auka töluvert við framboðið milli ára", sagði Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í lok júní.
Fleiri bókanir
Matthías segir bókanir nú vera töluvert betri en í fyrra, sem verði að teljast jákvætt í ljósi eldgossins í Eyjafjalljökli. „Í gosinu hrundu bókanir, sérstaklega hjá útlendingum, niður. Það er búið að pikka verulega mikið upp, þannig að við vonum að þetta haldi áfram,“ segir hann og bætir við að það stefni vonandi í verulega góðan vetur.
Hann bendir að vegna gossins verði sumarið ekki eins gott og menn hafi gert ráð fyrir, a.m.k. fyrri hluti sumarsins. „En júlí og ágúst líta nokkuð vel út, og bókanir inn á veturinn eru mjög góðar,“ segir Matthías.





































