Húsaleiga hefur hækkað á höfuðborgarsvæðinu
Húsaleiga hefur hækkað á höfuðborgarsvæðinu að því er fram kemur í nýrri könnun Neytendasamtakanna í júlí. Fram kemur að að ef einungis sé litið til fermetraverðs hafi tveggja herbergja íbúðir lækkað í verði en hækkun annarra eigna sé á bilinu 3,9-17,5%. Stærstu eignirnar hafi hækkað mest.
Samtökin könnuðu síðast leiguverð í febrúar sl.
Fram kemur að meðalverð á tveggja herbergja íbúð, sem sé 65 fermetrar að stærð, sé nú 107.122 kr. Í febrúar hafi meðalverðið verið 100.692 kr. Hæsta verð í könnuninni er 159.000 kr. og það lægsta er 55.000 kr.
Meðalverð á þriggja herbergja herbergja íbúð, sem er 90 fermetrar að stærð, er nú 133.138 kr. Meðalverð í febrúar var 127.178 kr. Hæsta verðið er 220.000 og það lægsta 70.000 kr.
Meðalverð á fimm herbergja íbúð, sem er 159 fermetrar að stærð, er 198.700 kr. Í febrúar var verðið 173.739 kr. Hæsta verð er 350.000 kr og það lægsta er 119.000 kr.
Fram kemur á vef Neytendasamtakanna að kannað hafi verið meðalverð á þeim íbúðum sem hafi verið boðnar til leigu 26. júlí sl.
Einungis hafi verið kannað verð á leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu (þ.e. Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Álftanesi, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ).
Einungis hafi verið kannaðar íbúðir á frjálsum markaði, en ekki tekið tillit til félagslegra íbúða, námsmannaíbúða eða íbúða fyrir eldri borgara.
Þá var ekki tekinn með í reikninginn kostnaður sem kunni að skapast vegna rafmagns, hita eða hússjóðs, heldur einungis leiguverðið sjálft.
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 13. ágúst 2011, Innlent Ráða ekki við húsaleiguna
- Miðvikudagur, 17. ágúst 2011, Innlent Einbýlishús til leigu á tæpar 6 milljónir
- Laugardagur, 13. ágúst 2011, Innlent Leigan hækkar og hækkar
- Fimmtudagur, 3. mars 2011, Innlent Húsaleigumarkaðurinn lítt rannsakaður
- Föstudagur, 8. janúar 2010, Innlent 230 þúsund fyrir 80 fermetra
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































