Vestmannaeyjabær greiðir fyrir aukaferð Herjólfs
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt, að greiða kostnað við aukaferð Herjólfs í vetur á meðan samgönguráðuneytið er að meta reynslu af siglingu skipsins milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. „Við höfum ekki efni á að láta tækifærin sigla framhjá okkur," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum.
Vestmannaeyjabær fór fram á það við ráðuneytið í maí, að ferðum Herjólfs milli lands og Eyja verði fjölgað um 125 á ári, úr 1360 í 1485. Kostnaður vegna þessa viðbótarferða er áætlaður 18 milljónir og buðust Vestmannaeyjabær og Eimskip til að greiða 66,6% af þeim kostnaði.
Í bréfi, sem samgönguráðuneytið hefur sent Vestmannaeyjabæ, segir að ráðuneytið telji ekki tímabært að taka afstöðu til þessarar óskar enda séu engar fjárveitingar á fjárlögum til þess. Ráðuneytið muni þó taka málið til skoðunar þegar reynsla hefur fengist af siglingu skipsins milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.
Í samþykkt bæjarráðs Vestmannaeyja í dag, segir, að verði ferðunum ekki fjölgað muni Herjólfur einungis sigla 3 ferðir á dag yfir vetrartímann og fyrstu farþegar því ekki komnir til Vestmannaeyja fyrr en um 13. Þar með séu möguleikar til samnýtingar þjónustu milli lands og Eyja, svo sem framhaldsskóla, sjúkrahúss, félagsþjónustu og fl. verulega skertir.
Elliði sagði, að ákveðið hefði verið að bærinn greiði þann kostnað, sem ella hefði fallið á ríkið, á meðan reynslan af siglingunum milli Eyja og Landeyjahafnar er metin.
„Fyrstu dagar siglinga í Landeyjahöfn sýna svo ekki verður um villst að þörfin fyrir tíðar ferðir er mikil en fyrstu 5 dagana ferðuðust 8110 farþegar með Herjólfi milli lands og Eyja," segir í bókun bæjarráðs. „Bæjarráð ítrekar það sem áður hefur komið fram um að það séu ferðir Herjólfs sem eru samgöngur við Eyjar, ein og sér skilar Landeyjahöfn ekki bætum samgöngum."
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. maí 2011, Innlent Herjólfur fer aukaferðir á morgun
- Miðvikudagur, 6. apríl 2011, Innlent Samþykkja ekki afslátt á öryggiskröfum
- Þriðjudagur, 5. apríl 2011, Innlent Aðstæður varasamar í Landeyjahöfn
- Þriðjudagur, 14. júní 2011, Innlent Herjólfur siglir aukaferð
- Fimmtudagur, 20. maí 2010, Innlent Samið um fjórar Herjólfsferðir
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































