Fólk gefi sér góðan tíma til að ná ferjunni

Sumir gefa sér ekki nægilega góðan tíma til að aka …
Sumir gefa sér ekki nægilega góðan tíma til að aka að Landeyjarhöfn. Rax / Ragnar Axelsson

Þeir sem hyggjast aka frá Reykjavík til Landeyjarhafnar þurfa að gera ráð fyrir 2 klukkustunda akstri ef aðstæður eru góðar. Þetta segir í tilkynningu frá Umferðarstofu, en eitthvað er um að ökumenn aki of hratt um Suðurlandsveg á leið sinni að Landeyjarhöfn.

Hafa skal í huga að á leiðinni er ekið í gegnum þrjá þéttbýliskjarna þar sem hraði er takmarkaður miðað við það sem almennt gerist á leiðinni. Um Verslunarmannahelgina má án efa búast við mikilli umferð og getur þá jafnvel þurft að gera ráð fyrir lengri tíma.

„Eitthvað hefur borið á því að ökumenn hafi farið of hratt um Suðurlandsveg á leið sinni austur að Landeyjarhöfn og má það í einhverjum tilfellum rekja til þeirrar ranghugmyndar að það taki aðeins eina og hálfa klukkustund að aka leiðina frá Reykjavík að Landeyjarhöfn. Það er ógerlegt að aka þessa vegalengd á svo skömmum tíma nema ekið sé á köflum langt yfir leyfðum hámarkshraða,“ segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert