Gæti grafið undan samkomulagi um vatnsréttindi
Jón Pétur JónssonÍsland var eitt þeirra ríkja sem sátu hjá þegar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun um réttindi til vatns og hreinlætis. Skv. upplýsingum frá íslenska utanríkisráðuneytinu ákvað Ísland að sitja hjá þar sem hætta sé talin á að ályktunin geti grafið undan samkomulagi um vatnsréttindi sem Mannréttindaráð SÞ vinni að.
Utanríkisráðuneytið telur að ályktunin eigi heima á vettvangi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Ráðuneytið tekur jafnframt fram að Ísland styðji eindregið að aðgangur að hreinu vatni teljist vera mannréttindi.
Ráðuneytið bendir á, að meirihluti ríkja Evrópusambandsins, eða 16 ríki, hafi setið hjá í atkvæðagreiðslunni. Það hafi einnig meirihluti Norðurlandanna gert: Ísland, Danmörk og Svíþjóð en Finnland og Noregur greiddu atkvæði með ályktuninni.
Fram hafi komið í máli nánast allra þeirra ríkja, sem hafi tekið til máls eftir atkvæðagreiðsluna, hvort sem ríkin höfðu greitt með ályktuninni eða setið hjá, að almenn óánægja væri með ferlið og innihald ályktunarinnar.
Aðildarríkin hafi talið að ferlið ætti að eiga sér stað í Mannréttindaráðinu í Genf og það gæti teflt umræðum þar í hættu.
Þá segir ráðuneytið að engin lagaleg stoð sé fyrir ályktuninni og hún taki ekki á skuldbindingum ríkja. Einnig hafi verið mikið rætt um það að samningaviðræður hafi ekki farið fram á sem árangursríkastan og gagnsæjan hátt, þar sem tími hafi verið af skornum skammti. Ekki hafi verið tekið tillit til tillagna aðildarríkja, og ekki hafi verið sóst eftir samhljóða samkomulagi um þetta málefni.
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. júlí 2010, Innlent Ísland sat hjá á þingi SÞ
- Mánudagur, 28. febrúar 2011, Innlent Styðja aðgerðir gegn Líbíu
- Mánudagur, 19. júlí 2010, Innlent Dómar Hæstaréttar ógna stöðugleika
- Föstudagur, 11. júní 2010, Innlent Ósáttir við þjóðnýtingu vatns
- Mánudagur, 7. september 2009, Innlent Hvetja stjórnvöld til að undirrita bókun um réttindi
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli




































