Stanslaus straumur til Eyja

Vestmannaeyingar voru í óðaönn að slá upp hvítu þjóðhátíðartjöldunum sem setja mikinn svip á Dalinn. stækka

Vestmannaeyingar voru í óðaönn að slá upp hvítu þjóðhátíðartjöldunum sem setja mikinn svip á Dalinn. mbl.is/Sigurgeir Jónasson

Lögreglan í Vestmannaeyjum er með mikinn viðbúnað vegna Þjóðhátíðarinnar og hefur fengið liðsstyrk frá öðrum lögregluliðum, aðallega á suðvesturhorninu. Ekkert lát er á straumi ferðamanna með flugi og Herjólfi og búist við mörgum til Eyja á morgun.

Hátt í 20 lögreglumenn koma til að styrkja lögregluna í Vestmannaeyjum. Þeir munu sinna almennri löggæslu og eins fíkniefnaeftirliti. Auk lögreglunnar munu björgunarsveitarmenn einnig vera við eftirlit og gæslu í Herjólfsdal þar sem Þjóðhátíðin er haldin. 

Einnig er búið að setja upp tjaldsvæði fyrir utan Herjólfsdal og þar verður einnig gæsla. 

Varðstjóri lögreglunnar í Vestmannaeyjum sagði að allt hafi farið vel fram hingað til, án þess að lögreglan þyrfti að hafa afskipti þar af. Mikið eftirlit er með ferðamönnum og strangt fíkniefnaeftirlit viðhaft. Aðeins smáræði af fíkniefnum hefur fundist til þessa.

Fólk er að koma sér á staðinn og koma sér fyrir í Dalnum. Vestmannaeyingar hafa verið að tjalda hvítu þjóðhátíðartjöldunum og flytja þangað húsbúnað og vistir. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Fánar Evrópusambandsins fyrir utan höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar sambandsins í Brussel.

Evrópusambandið kynnir sig sjálft

13:35 Sérstök upplýsingaskrifstofa um Evrópumál, sem fengið hefur heitið Evrópustofa, var opnuð við Suðurgötu í Reykjavík í síðasta mánuði en markmið hennar er að miðla hlutlægum upplýsingum til Íslendinga um Evrópusambandið og kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í sambandið. Meira »

SUF vill draga ESB-umsóknina til baka

13:34 Samþykkt var á 37. þingi Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í morgun að aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði hætt og umsókn Íslands um aðild að sambandinu dregin til baka. Meira »

Vilja efla siðferði í stjórnmálum

Þingmenn Hreyfingarinnar standa að Breiðfylkingunni.
12:53 Stofnfundur Breiðfylkingarinnar hófst á hádegi en að henni standa Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og einstaklingar úr stjórnlagaráði. Í kjarnastefnu fylkingarinnar segir að leysa verði skuldavanda heimilanna og efla siðferði í stjórnmálum. Meira »

Yrði ōðruvísi biskup myndskeið

biskupsframbod gunnar
11:45 MBL Sjónvarp ræðir á næstu vikum við frambjóðendur í biskupskjörinu sem fer fram á næstunni. Þannig gefst almenningi tækifæri á að kynnast þeim sem eru í framboði þó kosningaréttur sé ekki almennur. Séra Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju ríður á vaðið. Meira »

Lætur hátt í fangaklefa

10:51 Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð að samkvæmi við Smiðjustíg á sjöunda tímanum í morgun þar sem einn gestanna var með uppsteit. Að sögn lögreglu var maðurinn óviðráðanlegur af bræði og réðst hann á lögreglumenn sem hugðust vísa honum úr samkvæminu. Hann var handtekinn og er í fangaklefa, þar sem hann lætur hátt, að sögn lögreglu. Meira »

Enginn með einkarétt á Samstöðu

Lilja Mósesdóttir.
12:44 Lilja Mósesdóttir, formaður stjórnmálaflokksins Samstöðu, segir að átta félög hafi verið skráð í fyrirtækjaskrá undir nafninu Samstaða. Eitt af þeim var stjórnmálaafl á landsvísu sem breytti nafni sínu til að Samstaða Lilju gæti fengið nafn sitt. Meira »

Handteknir fyrir að keyra á mann

Ekið var á manninn í Austurstræti.
11:03 Tveir menn voru handteknir á heimili annars þeirra á sjötta tímanum í morgun vegna gruns um að annar hvor þeirra hefði ekið á mann í Austurstræti á fimmta tímanum. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar líður á daginn. Meira »

Martröð í matarboði myndskeið

Stuttmyndahornið: Martröð í matarboði
10:33 Myndin Takk fyrir mig er fimmta myndin sem MBL Sjónvarp sýnir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndin fjallar um matarboð sem virðist ætla að ganga vel þar til einn gestanna uppgötvar skuggahliðar gestgjafans. Meira »

Leikstjórinn kom inn sem ljón

Skot úr sýningunni um Galdrakarlinn í Oz.
10:09 Leikarinn Halldór Gylfason var fluttur á slysadeild í gær þegar hann slasaðist við sýningu á Galdrakarlinum í Oz. Lúga opnaðist fyrir mistök á sviðinu þegar Halldór gekk um það og datt hann niður um hana. Tjaldið var snögglega dregið fyrir og varð úr að leikstjóri sýningarinnar kláraði sýninguna. Meira »

Enn skelfur við Grímsey

Skjálftar á landinu í morgun.
09:38 Töluverður fjöldi jarðskjálfta hefur mælst í nótt og fram á morgun við Grímsey. Sá stærsti sem mælst hefur var um tvö stig og voru flestir af svipuðum styrkleika. Meira »

Fjöruverðlaun eftir viku

Bækur níu kvenna eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna.
09:42 Misritað var í Morgunblaðinu í gær að Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verði afhent í Iðnó í dag, en rétt er að það verður eftir viku, 18. febrúar næstkomandi, en þá verður haldin Góugleði í Iðnó. Gestur verðlaunahátíðarinnar verður rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. Meira »

Opið á skíðasvæðum

Fólk á skíðum.
09:26 Þó svo auð jörð sé í höfuðborginni er víða hægt að skíða í dag. Þannig fer fram Oddskarðssmót og þar verður keppt í svigi 9 til 12 ára. Opið verður í Oddsskarði frá klukkan 10 til kl. 16 og eru aðstæður býsna góðar. Einnig er opið á skíðassvæði Dalvíkur og á skíðasvæðinu í Tindastól. Meira »

Fíkniefnasali handtekinn

08:44 Lögerglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann, sem var að selja fíkniefni við veitingahús í borginni en maðurinn var með fíkniefni í söluskömmtum innanklæða. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjónkeppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Braut rúðu í lögreglubíl

08:40 Maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði í nótt eftir að hann braut rúðu í lögreglubíl.  Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhaldsþjónusta
bókhald, laun, skil á vsk og lífeyrissj., uppgjör og framtal. s:533-4700, 842-55...
TEK AÐ MÉR AÐ FALDA BUXUR, SKIPTA UM RENNILÁSA OFL
Tek að mér að falda buxur, skipta um rennilása, þrengja eða víkka fatnað og flei...
Gisting Akureyri - gista.is
Notalegar orlofsíbúður miðsvæðis á Akureyri. Uppábúin rúm, handklæði og internet...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss Staðsett 20 mín...
 
Leikskólastjóri
Leikskólakennsla
Leikskólastjóri Seyðisfjarðarkaups...
Laus staða í grunnskóla snæfellsbæjar
Grunn-/framhaldsskóla
Laus staða í Grunnskóla Snæfellsbæja...
Sýslumaðurinn í keflavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....