Stjórnendur og bankamenn vel launaðir

stækka

mbl.is/Golli

Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, sagði að álagningarskrá ríkisskattstjóra, sem birt var í gær, sýndi að laun stjórnenda fyrirtækja og banka hafi ekki lækkað mikið eftir fjármálahrunið haustið 2008.

Frjáls verslun gefur í dag út sérstakt blað með upplýsingum um tekjur 3000 einstaklinga, unnar upp úr álagningarskrám. Jón sagði, að 200 launahæstu forstjórarnir hafi að meðaltali verið með 2,2 milljónir króna á mánuði í skattskyldar launatekjur á síðasta ári miðað við álagt útsvar. Þá hefðu 200 launahæstu næstráðendurnir í fyrirtækjum verið með um 1700 þúsund á mánuði og meðallaun 350 næstráðenda, sem fjallað er um í blaðinu, voru 1350 þúsund.  

Þá sagði Jón að meðallaun 200 launahæstu bankamannanna hefðu verið 2 milljónir á mánuði á síðasta ári.

Samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar fékk Árni Pétur Jónsson, fyrrverandi forstjóri  Teymis, hæstu laun forstjóra í fyrirtækjum á síðasta ári, ef miðað er við skattskyldar tekjur, 13.659 þúsund krónur á mánuði. Þorsteinn M. Baldvinsson, forstjóri Samherja, var með 10.389 þúsund og Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, var með 8722 þúsund krónur á mánuði. 

Guðmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, var launahæstur starfsmanna fjármálafyrirtækja samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar, en hann var með 20.386 þúsund krónur á mánuði. Óttar Pálsson, forstjóri Straums, var með 11.276 þúsund og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, með 10.770 þúsund. 

Í flokknum ýmsir menn úr atvinnulífinu var Guðmundur A. Birgisson, bóndi á Núpum, með 9905 þúsund á mánuði, Björn Traustason, húsasmíðameistari, var með 9497 þúsund og Sævar Karl Ólason, kaupmaður,  með 8172 þúsund.

Af næstráðendum í fyrirtækjum var Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, launahæstur með 13.802 þúsund á mánuði,  David John Kjos, framkvæmdastjóri hjá Norðuráli, var með 6621 þúsund, og Mark Burgess Keatley, fjármálastjóri Actavis Group, með 5861 þúsund krónur.

Ólafur Ragnar Grímssson, forseti Íslands, var með 1562 þúsund á mánuði á síðasta ári. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var með 1231 þúsund krónur og Sigmundur Ernir Rúnarsson, alþingismaður, með 1174 þúsund. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, var með 1076 þúsund krónur á mánuði.

Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi í Árborg, var með hæst laun í flokki sveitarstjórnarmanna, 1691 þúsund á mánuði. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ var með 1678 þúsund, og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, 1527 þúsund.  Jón Gnarr Kristinsson, borgarstjóri, var með 1359 þúsund.

Í flokki starfsmanna hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins var Jóhannes Siggeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, með 4036 þúsund á mánuði, Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, með 3776 þúsund og Guðmundur Hallvarðsson, formaður stjórnar Hrafnistu, með 1836 þúsund.

Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra í Bretlandi, var með hæstu launin í flokki embættismanna og forstjóra ríkisfyrirtækja, 2194 þúsund. Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, var með 1724 þúsund og Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri, með 1509 þúsund.

Sigurður Hafstein, hæstréttarlögmaður,  er efstur í flokki lögfræðinga, með 4222 þúsund krónur. Ingvar Sveinbjörnsson, hrl., var með 3561 þúsund krónur og Bjarni Þór Óskarsson, hrl. með 2903 þúsund. 

Jóhann Gunnar Jóhannsson, endurskoðandi, er með hæstar launatekjur af endurskoðendum, sem Frjáls verslun skoðar, 4482 þúsund. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri KPMG, var með 2204 þúsund og Heimir Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi, var með 2059 þúsund.

Ólafur Guðmundsson, augnlæknir, var tekjuhæstur lækna, með 4499 þúsund á mánuði. Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir á Ísafirði, var með 2942 þúsund og Friðrik Jónsson, læknir á Stykkishólmi, með 2765 þúsund.

Í flokki flugfólks var Halldór Þ. Sigurðsson, flugstjóri hjá Icelandair, með 2107 þúsund krónur. Einar E. Guðlaugsson, flugstjóri hjá Icelandair, var með 1880 þúsund og Hilmar Baldursson, flugrekstrarstjóri og flugstjóri, var með 1872 þúsund.

Í flokki verkfræðinga var Elías Skúli Skúlason, vélaverkfræðingur, með 2561 þúsund í mánaðarlaun samkvæmt álagningarskrá. Svanlaugur Sveinsson, tæknifræðingur, var með 2107 þúsund og Pálmi Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Smáralindar, með 1979 þúsund.

Gunnlaugur Garðarsson, Akureyri, var með 5675 þúsund krónur á mánuði samkvæmt álagningarskránni, Cecil Haraldsson, Seyðisfirði, var með 1112 þúsund, og Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup á Skálholti, var með 992 þúsund krónur. 

Í flokki auglýsingafólks var Ólafur Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslensku auglýsingastofunnar, með 1101 þúsund á mánuði, Jón Sæmundsson, framkvæmdastjóri ENNEMM, var með 1028 þúsund og Atli Freyr Sveinsson, framkvæmdastjóri Íslensku auglýsingastofunnar, með 1017 þúsund.

Í flokki listamanna var Þórhallur Sigurðsson (Laddi) tekjuhæstur með 2264 þúsund krónur að jafnaði í mánaðarlaun, Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndagerðarmaður, var með 1521 þúsund og Hallur Helgason, kvikmyndagerðarmaður, með 1362 þúsund. 

Guðmundur Otri Sigurðsson, aflraunamaður, var tekjuhæstur í flokki íþróttamanna og þjálfara, með 2199 þúsund. Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, íþróttakona, var með 1957 þúsund og Willum Þór Þórsson, knattspyrnuþjálfari, með 1307 þúsund.

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, var tekjuhæstur fjölmiðlamanna, með 3806 þúsund, Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi ritstjóri Pressunnar, var með 1810 þúsund og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, var með 1559 þúsund.

Í flokki skólamanna var Kristján Jóhannsson, lektor HÍ og stjórnarformaður Icepharma, með 2210 þúsund á mánuði, Jón Sigurðsson, háskólakennari, með 2027 þúsund og Stefán B. Sigurðsson, rektor HA, með 1823 þúsund.

Í flokki sjómanna og útgerðarmanna var Óskar Freyr Brynjarsson, Vestmannaeyjum, með 3728 þúsund, Gylfi Viðar Guðmundsson, stýrimaður, Vestmannaeyjum, með 3083 þúsund og Guðmundur H. Guðmundsson, skipstjóri, Vestmannaeyjum, með 3015 þúsund. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA ACCORD EXECUTIVE 2,4 i-VTEC 2006 - SKIPTI ÓDÝRARI
Honda Accord Tourer Executive 2,4 i-VTEC 2006. Sjálfskiptur, ekinn aðeins 78 þ. ...
20" barnareiðhjól til sölu
Til sölu 20" Mongoose Rockadille barnareiðhjól. Mjög vel með farið í toppstandi ...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
Kawasaki KLE 500
Til sölu Kawasaki árgerð 2007, ekið 6035km. Allt í einum pakka,hjól, jakki, bux...
 
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...