15 þúsund á þjóðhátíð
Stöðugur straumur gesta hefur verið til Vestmannaeyja síðasta sólarhringinn og áætlar lögregla nú að fjöldi gesta sé kominn í 15 þúsund. Enn eru margir væntanlegir í dag, kvöld og á morgun.
Lögreglan í Eyjum segir, að talsverður erill hafi verið þar í nótt en engin meiriháttar óhöpp hafi komið. Ein líkamsárás var kærð en þar var um að ræða 17 ára pilt, sem sló jafnaldra sinn.
Alls komu upp 11 fíkniefnamál og hafa 20 slík komið upp í Eyjum frá því á fimmtudag. Stærsta fíkniefnamálið kom upp í gærkvöldi þar sem fundust 44 grömm af amfetamíni á einum manni og telur lögregla að þau hafi verið ætluð til sölu á hátíðinni.
Fjórir gistu fangageymslur í nótt og einn þeirra fyrir að brjótast inn í verslunina Pennann við Bárustíg.
Um 120 manns sinna gæslustörfum í Herjólfsdal á álagstímum. Þá eru 16 lögreglumenn á vakt og 11 lögreglumenn með þrjá hunda sem sinna fíkniefnaeftirliti.
Lögreglustjórarnir á Suðurlandi komu til Eyja í dag til þess að kynna sér löggæslu á þjóðhátíð og fóru þeir Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Hvolsvelli, Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Selfossi og Þorgrímur Óli Sigurðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn um hátíðarsvæðið í fylgd Karls Gauta Hjaltasonar, lögreglustjórans í Vestmannaeyjum og hans manna.
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 2. ágúst 2009, Innlent Illa barinn á þjóðhátíð
- Mánudagur, 2. ágúst 2010, Innlent Þjóðhátíðargestir streyma heim
- Laugardagur, 1. ágúst 2009, Innlent Grunur um afbrot í Eyjum
- Mánudagur, 3. ágúst 2009, Innlent Fólkið streymir frá Eyjum
- Föstudagur, 31. júlí 2009, Innlent Aldrei áður jafn margir á þjóðhátíð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































