Manni bjargað úr jökulá
Björgunarsveitir Slysvarnafélagsins Landsbjargar björguðu manni úr jökulá fyrir norðan Jökulheima, vestan við Vatnajökul, á sjötta tímanum í kvöld. Maðurinn hafði ekið fjórhjóli sínu út í jökulá og fest það. Hann beið björgunar í þrjá tíma, en illa gekk að finna manninn.
Tvær björgunarsveitir sem taka þátt í hálendisvaktinni, Hjálparsveit skáta í Reykjavík og Björgunarsveitin Núpar frá Kópaskeri, svöruðu kallinu en þær voru staddar á Sprengisandsleið og við Landmannalaugar.
Maðurinn hafði ekið fjórhjóli út í á sem kemur úr Sylgjujökli í Vatnajökli og festist hjólið. Ferðafélagi mannsins hafði samband við Neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð. Þegar björgunarsveitir komu á svæðið var hafist handa við að bjarga manninum úr ánni og gekk það greiðlega fyrir sig. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu mátti ekki tæpara standa því maðurinn var orðinn kaldur og hrakinn eftir dvöl sína á hjólinu í köldu jökulvatninu í meira en þrjár klukkustundir.
Um leið og hann var kominn á land var hann settur í þurr föt og hlúið að honum. Maðurinn hressist fljótt og var hjólinu bjargað úr ánni. Björgunarsveitirnar eru nú á leið til byggða ásamt leiðangursmönnum og gengur ferðin vel.
Slysavarnafélagið Landsbjörg segir, að aukin útbreiðsla GSM símakerfisins hafi enn og aftur sannað gildi sitt. Útbreiðslan hafi aukist stórlega á hálendinu undafarið og stóraukið öryggi fólks á svæðinu.
Innlent »
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. ágúst 2010, Innlent Lagði út í svellkalda ána
- Fimmtudagur, 23. september 2010, Innlent Lést í slysi á Grænlandi
- Laugardagur, 23. apríl 2011, Innlent Leitað að hestamanni
- Mánudagur, 10. maí 2010, Innlent Fluttur með þyrlu eftir slys
- Laugardagur, 5. mars 2011, Innlent Maðurinn fundinn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































