Styðja ekki björgun bankanna

stækka

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

34 þingmenn af 63 ætla að greiða atkvæði gegn því að bönkunum verði bjargað á nýjan leik, samkvæmt frétt Bloomberg fréttastofunnar. Eru allir þingmenn stjórnarandstöðunnar og þrír þingmenn Vinstri grænna andvígir því að veita bönkunum nýtt fjármagn. 

Alþingi getur komið í veg fyrir tilraunir ríkisstjórnarinnar til að endurfjármagna íslensku bankana ef þeir þurfa á nýju fjármagna að halda vegna dóma um ólögmæti gengistryggingu lána, samkvæmt Bloomberg.

Ríkisstjórnin getur ekki í annað skiptið á jafn mörgum árum, án stuðnings Alþingis, endurfjármagnað bankakerfið en talið er að fjármálageirinn þurfi á auknu fé að halda eftir dóm Hæstaréttar í júní sl. þar sem gengistrygging bílalána var dæmd ólögleg.

Matsfyrirtækið Moody's breytti í síðustu viku horfum á Baa3 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fyrir innlendar og erlendar skuldbindingar úr stöðugum í neikvæðar. Moody's breytti einnig horfum á lánshæfisþaki Íslands fyrir erlendar langtíma- og skammtímaskuldbindinga úr stöðugum í neikvæðar.

„Þessi breyting á lánshæfismati á rætur sínar að rekja til nýlegs dóms hæstaréttar um ólögmæti gengisbundinna lána og áframhaldandi erfiðleika stjórnvalda við að leysa Icesave deiluna við bresk og hollensk stjórnvöld. Dómur hæstaréttar getur haft þau áhrif að bankarnir tapi töluverðu fé á gengisbundnum lánum til innlendra lántaka og gæti bankakerfið því þurft aukinn stuðning frá stjórnvöldum. Takist ekki gæti það leitt til þess að Norðurlöndin og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn haldi að sér höndum hvað varðar frekari lánafyrirgreiðslu til íslenskra stjórnvalda," segir í lauslegri þýðingu Seðlabanka Íslands á ákvörðun Moody's. 

Moody‘s bendir á að skuldastaða íslenska ríkisins sé nú þegar há miðað við núverandi lánshæfismat þess. Jafnframt sé því spáð að heildarskuldir ríkisins nái 150% af vergri landsframleiðslu á þessu ári og að hreinar skuldir þess verði 86%. Samkvæmt spá fyrir næsta ár munu hreinar skuldir nálgast 100% af vergri landsframleiðslu.

Guðfríður Lilja, Ögmundur og Lilja Mósesdóttir á móti

Bloomberg hefur eftir Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, VG, að hún muni ekki styðja endurfjármögnun bankanna. Nægu fé hafi verið dælt inn í bankakerfið. Fjármálakerfið sé allt of stórt.

Margrét Tryggvadóttir, Hreyfingunni, segir það óþolandi að hagnaður renni alltaf til einkaaðila á meðan tapið falli á skattgreiðendur.

Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, segir að ríkisstjórnin verði að forðast það að þurfa að endurfjármagna bankanna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Framsóknarflokki, Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir, VG, staðfestu öll andstöðu sína við endurfjármögnun bankanna við fréttamann Bloomberg.

Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, telur að í nóvember í síðasta lagi muni liggja fyrir hversu mikið fé bankarnir þurfa á að halda.

Svipað ástand og sumarið 2008

Dómur Hæstaréttar féll rétt fyrir sumarleyfi í Hæstarétti en dómurinn kemur ekki saman aftur fyrr en í september. Gísli Hauksson, hagfræðingur hjá GAM Management hf. segir ástandið nú minna mjög á sumarið 2008 þegar þörf var á að erfiðar ákvarðanir væru teknar. „Við stöndum nú frammi fyrir erfiðari ákvarðanatöku en  stjórnsýslan er í sumarleyfi."

Gísli segir að ef ekki verður sett nýtt fjármagn inn í bankana geti það þýtt að Arion banki og Íslandsbanki verði neyddir til sameiningar. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn segir að fjármálageirinn sé of stór á Íslandi svo kannski verður þetta til þess að straumlínulaga kerfið, segir Gísli í samtali við Bloomberg.

Frétt Bloomberg í heild


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson mbl.is/Ómar Óskarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.

„Ég er í skýjunum“

Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »
Jónsi og Greta Salóme.

„Mjög sérstök tilfinning“

Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
Í gær, 17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
Í gær, 16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
Í gær, 16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
Í gær, 16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

Í gær, 16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
Í gær, 15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
Í gær, 15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
Í gær, 15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
Í gær, 14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
Í gær, 15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
Í gær, 15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

Í gær, 14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
LINCOLN
Lincoln Navigator Elite Long ´08 Flottasta gerðin. Ek. 65 þ...
Klassískt og vandað sófasett
Afar vandað klassískr sófasett, rauðbrúnt. Sófi og tveir stóla til sölu. Vel með...
Hyundai Tucson árg ´04 til sölu
Til sölu þessi fallegi bíll, keyrður 117 þús, bensín, sjálfskiptur, heilsársdekk...
 
Efni í skolpútrás
Tilboð - útboð
Vestmannaeyjabær Útbo...
Tryggingar - vátryggingavernd
Tilboð - útboð
Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12755 klapparstígur
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...