Í felum á Klambratúni

Jón Arnar Ólafsson

Bílvelta varð á Miklubraut rétt fyrir klukkan þrjú í nótt, á móts við Rauðarárstíg. Ökumaður var einn í bílnum og sakaði ekki en reyndi að komast undan lögreglu með því að fela sig í trjágróðri á Klambratúni.

Bifreiðinni var ekið í austurátt og hafnaði á hvolfi á akbrautinni sem liggur í vesturátt, eftir að hafa verið ekið í gegnum girðingu.

Ökumaðurinn, sem var ölvaður og í annarlegu ástandi, fannst á Klambratúni stuttu síðar og var handtekinn og sviptur ökuréttindum.

Hann gistir nú fangageymslu eftir skoðun á slysadeild.

Þá handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tvo þjófa við innbrot í bíla í Lækjarsmára í Kópavogi um þrjúleytið í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert