Fundarlok óráðin
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna telur, að það sé verkfallsbrot ef Flugfélag Íslands færir flug frá Akureyri til Húsavíkur ef af dagsverkfalli slökkviliðsmanna verður á morgun.
Sáttafundur slökkviliðsmanna og launanefndar sveitarfélaga, sem hófst klukkan 13:30, stendur enn. Fundurinn er í húsakynnum ríkissáttasemjara og undir hans stjórn.
Takist ekki að semja munu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fara í verkfall á morgun. Það mun standa frá klukkan 8 árdegis til klukkan 12 á miðnætti. Fyrirkomulag verkfallsins verður með sama sniði og í verkfallinu 23. júlí síðastliðnum nema nú stendur það átta klukkutímum lengur.
Komi til verkfalls verður varðstöðu á Akureyrarflugvelli ekki sinnt frá klukkan 8 til 24 á morgun. Flugfélag Íslands hefur boðað, flug frá Reykjavík verði fært frá Akureyri til Húsavíkur.
Í tilkynningu frá Landssambandi slökkviliðsmanna segir, að flytja þurfi starfsmenn til Húsavíkur, bæði flugvallarstarfsmenn og slökkviliðsmenn, komi til þessa. Telji landssambandið, að félagsmenn einstakra stéttarfélaga, sem vinna við innanlandsflug, gætu framið verkfallsbrot með því að ganga í þau störf sem félagsmenn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sinni ekki í löglega boðuðum verkfallsaðgerðum.
Mbl.is náði tali af Valdimar Leó Friðrikssyni, framkvæmtastjóra Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, en hann situr á kjarafundinum. Hann sagði flest stefna í verkfall á morgun en verið sé að skoða ákveðnar hugmyndir þó svo fátt nýtt væri í stöðunni.
Nú sé verið að ræða hvort Húsavíkurflugið kunni að vera verkfallsbrot. „Það vefst ekki fyrir mér að með því að láta óvana menn ganga inn í slökkviliðsstörf sé öryggi almennings ógnað,“ segir Valdimar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Fylgjast með fyrir norðan
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Bíll frá Bakka til Húsavíkur
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Slökkviliðsmenn í verkfall
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Innlent Skoða saman töluleg gögn
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Erfitt að sjá að Húsavíkurflug sé verkfallsbrot
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































