Sprengjuárásir á Þjóðhátíð
„Maður veltir því fyrir sér hvort þarna séu vitstola menn á ferð eða hvað liggi eiginlega að baki þessu því þetta er bara terrorismi og mjög gróf hegðun," segir Páll Scheving, formaður Þjóðhátíðarnefndar, um sprengjuárásir sem gerðar voru aðfaranótt mánudags þegar þjóðhátíð stóð sem hæst í Herjólfsdal.
„Við urðum varir við það um nóttina að miklir hvellir heyrðust og þegar við rannsökuðum málið kom í ljós að fjórir einstaklingar höfðu slasast og einn nokkuð alvarlega," segir Páll.
Á pressunni.is í dag var rætt við karlmann, sem fékk glerbrot í fótinn eftir að sprengja af þessu tagi sprakk í mannfjöldanum. Ígerð komst í sárið.
Að sögn Páls virðist sem um hafi verið að ræða nokkurs konar glersprengjur, heimagerðar, með þeim hætti að glerbrot þeyttust út frá þeim þegar þær sprungu. Talið sé að alls hafi 6-7 sprengjur sprungið, flestar í grennd í bjórtjaldið þar sem töluvert var af ungu fólki, en ekki er ljóst hvort sprengjunum var varpað inn í mannfjöldann eða þær skildar eftir á jörðinni.
„Það er erfitt að koma í veg fyrir svona lagað nema með því að vera með öfluga gæslu sem fælingarmátt og við reyndum að efla það um leið og við urðum vör við að fólk hefði slasað, og koma þeim strax í læknishendur," segir Páll. Gert var að sárum fólksins í sjúkratjaldinu í Herjólfsdal og tók aðhlynning töluverðan tíma að sögn Páls, en þó mátu læknar það ekki svo að leggja þyrfti neitt fórnarlambanna inn.
Lítil meðvitund virðist hafa verið um sprengjuárásirnar meðal gesta þjóðhátíðar og segir Páll að sennilega hafi þeir sem í þeim heyrðu talið að þar væru menn að sprengja flugelda. „Það greip ekki um sig neinn ótti því auðvitað er mikið mannhaf í dalnum og hávaði frá tónlist og öðru."
Ekki hefur tekist að hafa hendur í hári sprengjuvarganna og engin vitni hafa gefið sig fram né hafa kærur borist til lögreglu. „Við reiknuðum nú með kæru frá þessum einstaklingum sem slösuðust því þetta er hrein og klár líkamsárás," segir Páll. Óskað sé eftir því að allir þeir sem kunni að hafa upplýsingar um málið láti lögreglu vita.
Páll segir annað eins ekki hafa komið fyrir á Þjóðhátíð svo vitað sé. „Við þekkjum ekki sprengjuárásir á þjóðhátíð og þetta er mjög bagalegt. Það er óhugnanlegt að fólk geti hugsað sér að framkvæma svona lagað."





































