Vegur yfir Fjarðarheiði einn sá hættulegasti
Fjarðarheiði getur verið torfær á veturna mbl.is/Steinunn
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar segir að í nýlegri úttekt Euro RAP á íslenska vegakerfinu fær vegurinn yfir Fjarðarheiði slæma útkomu. Er leiðin skilgreind sem einn hættulegasti vegur landsins.
„Væru vegamót á leiðinni milli Seyðisfjarðar og Héraðs fleiri en raun ber vitni fengi vegurinn aðeins tvær stjörnur af fimm fyrir öryggi en í skýrslunni er bent á að vegurinn yfir Fjarðarheiði er mjög hár, brattir fláar á honum nánast alla leið og er leiðin eftir því hættuleg vegfarendum. Á sérstöku slysakorti Euro RAP (Risk Rate Map), sem byggt er á slysasögu með tilliti til lengdar vegar og umferðarmagns fær Fjarðarheiði aðeins eina stjörnu. Leiðin er með öðrum orðum skilgreind sem einn hættulegasti vegur landsins," segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Seyðisfjarðar.
Þar segir að Seyðfirðingar hafi lengi bent á nauðsyn þess að ráðast í göng undir Fjarðarheiði og fyrir því eru bæði öryggissjónarmið og mörg önnur rök hvað varðar atvinnulíf, skólasókn og mannlíf almennt.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar ítrekaði í síðasta mánuði þá kröfu Seyðfirðinga að Fjarðarheiðargöng verði sett inn á samgönguáætlun stjórnvalda við endurskoðun hennar í haust. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs lýsti fullum stuðningi við þetta baráttuefni Seyðfirðinga á fundi sínum í síðustu viku.
„Bæjarstjórn Seyðisfjarðar minnir á að Fjarðarheiðargöng eru eini akvegurinn til og frá Seyðisfirði, vegur sem fer í rúmlega 620 metra hæð. Truflanir á vetrarsamgöngum eru tíðar, með tilheyrandi óöryggi og óþægindum fyrir íbúa Seyðisfjarðar og aðra þá sem veginn nota. Barátta fyrir göngum undir Fjarðarheiði hefur staðið í um 30 ár og er að mati Seyðfirðinga ekki ásættanlegt annað en Fjarðarheiðargöng verði sett á áætlun stjórnvalda nú í haust þannig að ekki sé vafi um að í gerð þeirra verði ráðist," segir í tilkynningu frá bæjarstjórninni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 26. desember 2009, Innlent Erill hjá Ísólfi
- Föstudagur, 1. janúar 2010, Innlent Fylgst með ákvörðun forsetans
- Laugardagur, 19. júní 2010, Innlent Ríkið gæti orðið bótaskylt
- Sunnudagur, 27. desember 2009, Innlent Veist að Íslendingi í Bretlandi vegna Icesave
- Þriðjudagur, 2. mars 2010, Innlent Flugumferðarstjórar boða verkfall
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































