Mátti ekki dreifa minnisblaðinu
Lögfræðingi efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, sem kynnt var niðurstaða lögfræðiálits LEX fyrir Seðlabanka Íslands, var afhent minnisblaðið til að styðjast við í starfi sínu með því skilyrði að því yrði ekki dreift frekar um ráðuneytið eða notað með öðrum hætti. Gylfi Magnússon neitaði því í Kastljósi í kvöld að hafa á nokkurn hátt gefið misvísandi upplýsingar í umræðum á Alþingi.
Gylfi sagði í Kastljósi að það væri Seðlabankans að útskýra hvers vegna ákveðið hefði verið að upplýsa ráðherra ekki um niðurstöðu lögfræðiálitsins. Gylfi játaði því að þetta væri „frekar óvenjulegt“ en þannig hafi minnisblaðið komið inn í ráðuneytið og hann hafi því ekki vitað af tilvist hans. Sjálfur hafi hann heldur ekki getað tekið sér það vald að skipa Seðlabankanum fyrir á þessum tíma þar sem Seðlabankinn heyrði ekki undir hans ráðuneyti.
Hann sagðist heldur ekki gera neina athugasemd við starfshætti lögfræðings ráðuneytisins, sem hefði fengið þessa hjálp frá Seðlabankanum til að vinna að eigin áliti og hefði gert það mjög vel. Síðar sama sumar hafi það komið fram á fundi með lögfræðingnum að aðallögfræðingur Seðlabankans hefði ákveðnar efasemdir um lögmæti gengistryggðra lána. „Ég fæ nú ekki séð að það hafi skipt neinu máli hvort ég hafi fengið þessar upplýsingar nokkrum vikum fyrr eða síðar," sagði Gylfi.
Gylfi segist ekki hafa gefið misvísandi upplýsingar í umræðum á Alþingi. Hann hafi þvert á móti sagt eftir sinni bestu vitneskju að enginn vafi léki á því að lán í erlendri mynt væru lögleg og bent svo á það í framhaldinu að ef einhver ágreiningur væri þá væri það dómstóla að skera úr um það en ekki viðskiptaráðuneytisins. „Þetta er niðurstaðan bæði frá lögfræðingi ráðuneytisins og nú höfum við séð að það var niðurstaða lögfræðings Seðlabankans, ég fæ ekki betur séð [en] að þetta séu réttar upplýsingar." Gylfi ítrekaði jafnframt að þetta lögfræðiálit sem Seðlabankinn lét vinna hafi ekki snúið að því sem var helsta áhyggjuefnið á þeim tíma, þ.e.a.s. lánasöfnum bankanna.
Bloggað um fréttina
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir Er íslensk króna erlend mynt? -
Sigurður Jónsson Jæja Gylfi, hvar er pokinn? -
Ingunn Guðnadóttir Mér varð næstum flökurt af að hlusta á manninn og -
Björn Birgisson Stend með Gylfa -
Kristinn Pétursson En mátti viðskiptaráðherra halda álitsgerðinni leyndri - lagalega séð? -
Sigurður Haraldsson Seðlabankinn! -
Heimir L Fjeldsted Ekki láta ráðherra sjá þetta - það varðar þjóðarhag -
-
Kristján H Theódórsson Aumasti af öllum aumum! -
S i g u r ð u r Sigurðarson Ráðuneytið í feluleik fyrir ráðherranum? -
Sigurjón Þórðarson Auðvitað vissu þau Steingrímur J. og Jóhanna Sigurðardóttir líka -
Guðrún María Óskarsdóttir. Þarf ekki að fá Jón Bjarnason í viðskiptaráðuneytið ? -
Þórður Björn Sigurðsson Aðkoma talsmanns neytenda -
Stefán Friðrik Stefánsson Trúverðugleiki Gylfa í molum -
Tryggvi Þórarinsson Það er ríkisstjórnin öll sem ætti að víkja. -
Jóhannes Ragnarsson Meðferðarstofnun fyrir leiðindasjúklinga -
-
Jón Baldur L'Orange Var þetta nýja Spaugstofan?
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Gosið náði upp á yfirborðið klukkan 8:30
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Tíu teknir fyrir hraðaakstur
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Ekið á hross við Kotströnd
- Mánudagur, 28. mars 2011, Innlent Kosið á sjúkrahúsum frá 29. mars
- Mánudagur, 18. apríl 2011, Innlent Gagnrýna skopmynd
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá





































