Bjarni: „Staða Gylfa í uppnámi"

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. stækka

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Rax

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir stöðu Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra í uppnámi og nauðsynlegt sé að hann  geri Alþingi grein fyrir málum varðandi gengistryggð lán og að atburðarrásin í heild verði rædd.

Vísar Bjarni þar til þess að í ljós hefur komið að Seðlabankinn lét vinna lögfræðiálit í maí 2009 um lánveitingar í erlendri mynt. Svo virðist sem hvorki forsætisráðherra né viðskiptaráðherra hafi vitað af álitinu.

Formaður Sjálfstæðisflokksins vill að Alþingi verði kallað saman til að ræða þá stöðu sem komin er upp. Hann hefur ekki borið slíkt erindi formlega upp við forsætisráðherra en mun gera það ef ekki verður boðað til þingfundar fljótlega. Slíkt eigi ekki að vera mikið mál enda nefndarstörf að hefjast.

Nauðsynlegt að fara yfir það hvers vegna Alþingi var ekki upplýst

Bjarni segir að það sé nauðsynlegt fyrir Alþingi að fara yfir tvennt án frekari tafar. Annars vegar hvernig þessir hlutir atvikuðust frá því að Seðlabankinn og viðskiptaráðuneytið fengu það lögfræðiálit um að öllum líkindum væru margir samningar sem í gangi væru ólöglegir. Hvernig það atvikaðist að frá því þetta lögfræðiálit lá fyrir að því var haldið frá þinginu og ríkisstjórnin lét undir höfuð leggjast að gera nokkrar ráðstafanir alveg þar til dómur féll í Hæstarétti. „Það muna allir hvað ríkisstjórnin var ráðþrota gagnvart dómi Hæstaréttar," segir Bjarni. „Það var horft algerlega fram hjá þessu máli langt fram á þetta ár," bætir Bjarni við.

Getur leitt til mikils tjóns fyrir ríkið

Bjarni segir að það sé ekki síður alvarlegt að sér hafi líka lagt þetta mál til hliðar þegar verið var að færa eignir yfir í nýju bankana. „Þær hafa að öllum líkindum verið ofmetnar. Það mun sérstaklega í tilfelli Landsbankans geta leitt til mikils tjóns fyrir ríkið. Það er mikilvægt að þingið sé upplýst um þetta," segir Bjarni.

Hann segir það átakanlegt hvernig Gylfi telji að fyrir það eitt að hann hafi ekki verið upplýstur þá beri hann ekki ábyrgð. „Ráðherrann ber auðvitað ábyrgð á öllu því sem fram fer í hans eigin ráðuneyti," segir Bjarni.

Upplýsti yfirmenn en ráðherra vissi ekki neitt

Í Morgunblaðinu í dag kom fram að Sigríður Rafnar Pétursdóttir, lögfræðingur í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, kveðst hafa upplýst yfirmenn sína um lögfræðiálit Seðlabanka Íslands sama dag og hún fékk það sent frá Seðlabankanum. Lögfræðiálitið sneri að ólögmæti erlendrar gengistryggingar lána sem veitt eru í íslenskri mynt.

Gylfi Magnússon sagði í viðtali við Kastljós í fyrrakvöld að hann hefði ekki vitað af álitinu því Seðlabankinn hefði gert þá kröfu að einungis Sigríður mætti berja það augum. Þá hefur aðallögfræðingur Seðlabankans sagt að enginn fyrirvari hafi verið gerður um leynd tölvupóstsins sem innihélt lögfræðiálit Seðlabankans. Sigríður óskaði eftir lögfræðiálitinu því hún vann að minnisblaði sama efnis.

Sigríður kveðst hafa unnið minnisblað sitt í samræmi við verklagsreglur efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og því áframsent lögfræðiálit Seðlabanka Íslands á Jónínu S. Lárusdóttur, þáverandi ráðuneytisstjóra.

„Ég fékk álitið frá Seðlabankanum og ég áframsendi það á þáverandi ráðuneytisstjóra efnahags- og viðskiptaráðuneytis samdægurs,“ segir Sigríður í Morgunblaðinu í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SAUMAVÉLAR
Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar...
Yamaha DT50R
Til sýnis og sölu hjá Yamaha/Artic Trucks. 80cc kit kraft sía og stærri blöndung...
HONDA CR-V STW
Honda CR-V STW 4WD RVI , 1998, ekinn 223 þús. Ssk, dráttarkr...
Til sölu Hankook dekk
225/75 R16 ca hálfslitin. Verð 30 þús. Uppl. í síma 898 4875...
 
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...