Fréttaskýring: Fjármögnun HS Orku gæti tafist verði áfram óvissa um eignarhaldið
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Stjórnendur HS Orku vonast eftir að í september afgreiði Orkustofnun virkjanaleyfi vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar. Leyfið er forsenda þess að hægt sé að ljúka fjármögnun virkjunarinnar og gerð raforkusamnings.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, segir að skapist óvissa um eignarhald á HS Orku sé hætt við að ekki verði hægt að ganga frá fjármögnun framkvæmdarinnar. 50 MW gufuhverfill og tilheyrandi búnaður vegna stækkunar virkjunarinnar kom til landsins í byrjun júní.
Búast má við að bora þurfi 7-8 holur til að fá næga orku til að knýja hverfilinn. Orkustofnun vill ekki gefa út virkjanaleyfi fyrr en fyrir liggja betri upplýsingar um hvort svæðið þolir meiri nýtingu. Holunni verður „hleypt upp“ sem kallað er í byrjun september og þá fást betri upplýsingar um hvort hægt sé að virkja meira á svæðinu. Sérfræðingar eru ekki sammála um hvort svæðið stendur undir einni vél til viðbótar.
Júlíus segir að leyfið sé forsenda fyrir því að hægt sé að ljúka fjármögnun og gerð orkusölusamnings. Hann segir að óvissa um eignarhaldið á HS Orku hafi neikvæð áhrif á þessa framkvæmd. „Þessi óvissa tefur klárlega fjármögnun framkvæmda. Það er mjög hæpið að fara í stóra lántöku eða hlutafjáraukningu í svona óvissu.“
Magma kom með 2,5 milljarða í nýtt hlutafé í HS Orku í mars sl. en það fjármagn var notað í að borga túrbínu og búnað henni tengdan og holur sem búið er að bora. „Það er allt greitt sem búið er að gera. Þetta eru talsverð tíðindi því þetta er í fyrsta skipti sem orkufyrirtæki á Íslandi fær nýtt hlutafé. Allar framkvæmdir hér á árum áður hjá Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja voru fjármagnaðar með lánum og jafnvel arðgreiðslur líka,“ segir Júlíus.
Júlíus viðurkennir að HS Orka sé að taka áhættu með því að kaupa túrbínu án þess að hafa fengið virkjanaleyfi. Þetta sé hins vegar alvanalegt verklag.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. desember 2010, Innlent Drög að virkjunarleyfi til athugunar
- Laugardagur, 13. febrúar 2010, Innlent Stækkun virkjunar strandar á leyfi
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Rannsóknarleyfi ekki yfirfæranleg
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Reiknað auðlindagjald 72 milljónir króna
- Miðvikudagur, 25. ágúst 2010, Innlent Vísað til gerðardóms
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































