Telja bréf organista einkabréf
Biskupsstofa hefur sent fjölmiðlum tilkynningu vegna tölvubréfs sem fyrrverandi organisti Bústaðakirkju, Birgir Ás Guðmundsson sendi í júní á síðasta ári þar sem hann lýsir samstarfi sínu við séra Ólaf Skúlason. Segir í bréfi biskupsstofu að bréf Birgis hafi ekki verið sent kirkjuráði formlega á sínum tíma.
„Við eftirgrennslan fannst meðal fylgiskjala sem Sigrún Pálína Ingvarsdóttir afhenti kirkjuráði í fyrra afrit af tölvubréfi frá honum sem stílað er á tvo aðila óviðkomandi kirkjuráði. Það er mat biskupsstofu að efni bréfsins sé slíkt að það falli undir 5.gr. upplýsingalaga sem fjallar um einkamálefni einstaklinga og því sé biskupsstofu óheimilt að birta það. Ásakanir um að biskupsstofa sé að stinga þessum málum undir stól eiga alls ekki við rök að styðjast," segir í tilkynningu frá biskupsstofu í kvöld.
Afrit af tölvubréfi Birgis, sem var organisti í Bústaðakirkju á áunum 1972-1977, var sent á fjölmiðla í dag. Þar lýsir Birgir því að hann hafi óvænt komið að Ólafi ásamt ungri konu í nokkurs konar kompu í myrkraherbergi í kirkjunni sem þá var enn í byggingu. Honum hafi alltaf síðar síðar þótt þetta mjög undarlegt en lengi talið sér trú um að Ólafur hefði verið að hugga stúlkuna eftir t.d. dauðsfall.
Lýsir Birgir í bréfinu síðari samskiptum sínum við Ólaf og segist hafa orðið einskonar sálusorgari Ólafs síðar.
Þann 19. júní á síðasta ári sendi kirkjuráð frá sér yfirlýsingu þar sem þær konur og börn, sem brotið hefði verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar, voru beðin fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafi liðið.
Þessi yfirlýsing var gefin eftir fund, sem kirkjuráð átti með Sigrún Pálínu Ingvarsdóttur og fjölskyldu hennar.
Í bókun kirkjuráðs sagði einnig:
Sigrún Pálína taldi mikilvægt að hún fengi áheyrn hjá kirkjuráði til að greina frá sárri reynslu er varðar meint alvarlegt siðferðisbrot sem hún kveðst hafa orðið fyrir af hálfu sr. Ólafs Skúlasonar er hún leitaði til hans sem sóknarprests. Jafnframt vildi hún lýsa vonbrigðum með viðbrögð og tómlæti af hálfu kirkjunnar á sínum tíma. Lagði hún fram bréf dags. 19. júní 2009 orðum sínum til áréttingar og önnur gögn. Kirkjuráð harmar sársauka og vonbrigði sem fram komu í frásögn hennar á fundinum og skort á skilningi og máttleysi í viðbrögðum kirkjunnar á sínum tíma. Kirkjuráð hefur ekki vald til að leggja mat á eða úrskurða um framangreindar sakargiftir. Ákæra var ekki gefin út á sínum tíma og sr. Ólafur er nú látinn.





































