Tvö umferðaróhöpp vegna ljósastaura

mbl.is/Július

Ekið var tvisvar sinnum á ljósastaura á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þann fyrri við Hringbraut, á móts við Framnesveg, upp úr klukkan níu í morgun.

Ákeyrslan var nokkuð hörð og var í fyrstu beðið um aðstoð slökkviliðs til að ná ökumanninum út úr bifreiðinni en það reyndist síðan óþarfi og lögregla náði manninum út. Meiðsl hans voru minniháttar en hann er grunaður um ölvun við akstur.

Þá var ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut, til móts við Kaplakrika, klukkan 12:30. Engin slys urðu á fólki í því tilfelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert