DNA-rannsókn vekur athygli
Bobby Fischer. mbl.is
Fréttir af því, að DNA rannsókn hafi leitt í ljós að skákmeistarinn Bobby Fischer hafi ekki verið faðir filippseyskrar stúlku hafa vakið athygli um allan heim í dag.
Stærstu blöð í Bandaríkjunum, þar á meðal New York Times, Washington Post og Usa Today, hafa meðal annars sagt frá málinu nú síðdegis, sem og fjölmiðlar í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Evrópu.
Þórður Bogason, lögmaður stúlkunnar, staðfesti að réttarmeinadeild Landspítalans hefði sent lögmönnum sem koma að málinu þann úrskurð sinn að Jinky Young geti ekki verið dóttir Fischers.
Talið er að Fischer hafi látið eftir sig um 2 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 240 milljóna króna. Auk Jinky Young, sem fæddist árið 2001, hafa Myoko Watai, sem segist hafa gifst Fischer árið 2004, og bandarískir systursynir hans gert tilkall til arfsins. Þá gera bandarísk stjórnvöld einnig kröfu um að dánarbúið greiði skatta, sem Fischer er sagður skulda.
Watai segist hafa gifst Fischer eftir að hann var handtekinn á Narita flugvelli í Tókýó áriðm 2004 þegar hann var á leiðinni til Filippseyja. Fischer var handtekinn fyrir að framvísa vegabréfi, sem bandarísk stjórnvöld sögðust hafa ógilt.
Eftir að Fischer hafði setið í varðhaldi í Japan í nokkra mánuði og barist gegn kröfu bandarískra stjórnvalda um að fá hann framseldan ákváðu íslensk stjórnvöld að veita honum íslenskan ríkisborgararétt og gáfu út vegabréf fyrir Fischer. Honum var sleppt úr haldi í ársbyrjun 2005 og kom hingað til lands. Hann lést í janúar 2008.





































