Fischer ekki faðir stúlkunnar
Niðurstaða DNA rannsóknar á lífssýnum úr Bobby Fischer og filippseyskrar stúlku er að Fischer sé ekki faðir stúlkunnar. Þetta hefur mbl.is fengið staðfest hjá lögfræðingi systursona Fischer. Því hefur barnfaðernismálið verið fellt niður en enn er deilt um hver eigi að erfa Fischer, systursynir hans eða meint eiginkona Fischers, Myoko Watai.
Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður systursona Fischers staðfestir við mbl.is að réttarmeinadeild Landspítalans hafi sent lögmönnum sem koma að málinu þann úrskurð sinn að Jinky Young geti ekki verið dóttir Fischers.
Marilyn Young, sem býr á Filippseyjum, hélt því fram að hún hafi eignast barn með Ficher árið 2001. Hæstiréttur féllst á kröfu hennar um að tekið yrði lífsýni úr Fischer til að fá úr því skorið hvort þetta væri rétt.
Fram hefur komið að Jinky heimsótti Fischer eftir að hann kom til Íslands. Meðal gagna, sem lögð voru fyrir dómstóla á
Íslandi, var mynd af Young, Jinky og Fisher uppi í rúmi árið 2004 og
póstkort til Jinky frá Fischer en á kortið er skrifað „Daddy“.
Deilur um hver sé lögmætur erfingi Fischer eru enn til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur og verður næst réttað í málinu í næsta mánuði.
Í desember í fyrra felldi Hæstiréttur úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að ekki þyrfti að fara fram opinber skipti á dánarbúi Fischer. Féllst Hæstiréttur þar með á kröfu systursona Fischer um að opinber skipti fari fram og er niðurstaða Hæstaréttar byggð á því að ekki hafi verið lögð fram fullnægjandi sönnun um að Fischer og Myoko Watai hafi gengið í hjónaband.
Í dómi Hæstaréttar kom fram að lagt hafi verið fram skjal með yfirskriftina hjónavígsluvottorð á ensku og í íslenskri þýðingu. Á því segi að það sé byggt á staðfestu afriti opinberrar fjölskylduskrifstofu. Skorað hafi verið á Watai að leggja fram gögn sem hafi verið grundvöllur skráningarinnar. Hún hafi ekki orðið við því og ekki heldur skýrt með fullnægjandi hætti hvað standi því í vegi. Var því lagt til grundvallar í málinu að ekki hafi verið lögð fram fullnægjandi sönnun um að þau hafi gengið í hjónaband.
Bloggað um fréttina
-
Jón Valur Jensson Kemur mér ekki á óvart – Bobby Fischer og arfleifð ...
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 4. september 2010, Innlent Engin uppgjöf í erfðamáli
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent Efast um hjónaband Fischers
- Mánudagur, 26. júlí 2010, Innlent Lögðu fram mynd af Fischer með dótturina
- Miðvikudagur, 2. mars 2011, Innlent Miyoko er lögerfingi Fischers
- Þriðjudagur, 17. ágúst 2010, Innlent DNA-rannsókn vekur athygli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































