Eignasala heldur ríkissjóði uppi

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. mbl.is/Ernir

Þegar horft er framhjá tekjum vegna sölu eigna er afkoma ríkissjóðs á fyrri helmingi þessa árs 2,8 milljörðum undir tekjuáætlun fjárlaga. Tekjur vegna skatta og tryggingagjalda eru einnig undir markmiði fjárlaga.

Rekstrartap ríkissjóðs á fyrri helmingi ársins nam 29,2 milljörðum króna, samanborið við 53,8 milljarða á sama tímabili árið áður. Innheimtar tekjur námu 232,5 milljörðum króna, sem eru 16,4 milljörðum meiri tekjur en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir og 27,7 milljörðum meiri en þær voru á sama tímabili í fyrra.

Hins vegar kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu að í júní hafi verið bókfærðar tekjur upp á 19,2 milljarða króna, vegna sölu sendiherrabústaðar í London og ráðstöfunar eigna Avens, félags í eigu Landsbankans, í Lúxemborg. Hagnaðist ríkissjóður um 17,5 milljarða króna þegar hann seldi lífeyrissjóðum íbúðabréf í eigu Avens. Þegar horft er framhjá þessum tekjum, sem falla aðeins til í eitt skipti, eru tekjur ríkissjóðs því 2,8 milljörðum undir marki og rekstrartapið því um 48,4 milljarðar, samanborið við áðurnefnda 53,8 milljarða á fyrri helmingi 2009, að því er fram kemur í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert