Nýtt starfsleyfi fyrir álverið í Reyðarfirði
Umhverfisstofnun hefur auglýst tillögu að nýju starfsleyfi fyrir álver Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði. Núgildandi starfsleyfi álversins var gefið út í ársbyrjun 2007 með gildistíma til ársins 2020. Vegna straumhækkunar á kerin í álverinu og betri nýtingar, er framleiðsla fyrirtækisins þegar komin yfir leyfilegt hámark og því þörf á nýju starfsleyfi.
Starfsleyfistillagan gerir ráð fyrir því að heimilt sé að framleiða allt að 360.000 tonn af áli á ári í kerskálum álversins, auk reksturs tilheyrandi málmsteypu, ker- og skautsmiðju, geymslusvæða tímabundið fyrir eigin framleiðsluúrgang og þjónustu fyrir eigin starfsemi.
Skipulagsstofnun komst að þeirri
niðurstöðu með úrskurði í ágúst 2009, að framleiðsluaukning í 360.000
tonn af áli væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð
umhverfisáhrif.
Við gerð tillögunnar var ítarlega farið yfir málefni varðandi losun brennisteinssambanda. Fram kemur á vef Umhverfisstofnunar, að nýjar upplýsingar bendi til þess að losun brennisteinssambanda sé ekki öll á formi SO2, heldur einnig á formi COS. Einnig að nokkur losun á brennisteinssamböndum geti átt sér stað vegna brennisteinsinnihalds í súráli.
Umhverfisstofnun hafi brugðist við með því að taka inn í útreikning á losunarmörkum brennisteinssambanda þessa ofangreindu þætti. Vegna þessara breytinga eru losunarmörk í starfsleyfistillögunni hærri, sem nemur þessum viðbótaruppsprettum, og því ekki fyllilega sambærileg við mörkin í núgildandi starfsleyfi.
Aðrar breytingar í starfsleyfistillögunni eru minniháttar og ekki efnislegar. Meðal þeirra eru nýjar kröfur um að halda opna kynningarfundi til að kynna umhverfismál fyrirtækisins.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Auglýsa starfsleyfi álvers á Reyðarfirði
- Miðvikudagur, 10. nóvember 2010, Innlent Nýtt starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál
- Þriðjudagur, 1. september 2009, Innlent Aukning Fjarðaáls ekki háð umhverfismati
- Laugardagur, 18. desember 2010, Innlent Aftur kominn straumur á Alcoa
- Laugardagur, 18. desember 2010, Innlent Eldurinn slökktur í álverinu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































