Viðrar vel fyrir flugeldasýningu

Flugeldasýningin ætti að sjást vel á laugardagskvöldið stækka

Flugeldasýningin ætti að sjást vel á laugardagskvöldið mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Ágæt veðurspá er fyrir höfuðborgarsvæðið um helgina og því góðar líkur á því að flugeldasýningin á laugardagskvöldið sjáist víða. Það ætti því að viðra vel fyrir þá sem ætla að taka þátt í atburðum á Menningarnótt og í Reykjavíkurmaraþoni á laugardag.

Samkvæmt upplýsingum frá Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi virðist hann vera lagstur í norðaustan og síðar norðanátt næstu daga.  Nokkuð myndarleg lægð verður á ferðinni við Írland og Skotland á sama tíma og Grænlandshæðin hefur náð að hreiðra um sig.  Með þessu fer veður heldur kólnandi á landinu.  Veðrið verður einna skást og reyndar alveg ágætt suðvestanlands þessa helgina.

 Föstudagur 20. ágúst:

Meira og minna skýjað á landinu, einna helst að það sjáist til sólar á Vesturlandi.   Norðaustan- og austanlands er spáð þokusudda og eins vestur með norðurströndinni og á Ströndum.  Annars staðar að mestu þurrt.  Þó má gera ráð fyrir rigningu um tíma undir kvöld á Suður- og Suðvesturlandi.  Veður fer kólnandi, einkum norðan- og austantil.  Aðfararnótt laugardagsins gæti hæglega gránað í fjöll norðaustanlands.  Með þessu verður víða strekkingsvindur, einkum á Vestfjörðum og við Breiðafjörð, þar allt að 13-15 m/s

 Laugardagur 21. ágúst:

Svipað veður á landinu, en heldur bjartara þó sunnan- og suðvestanlands.  Á móti kemur að heldur verður blautara norðan- og austantil, þar sem gert er ráð fyrir þungbúnu veðri og hita 7 til 10 stig. Sunnan til verður skýjað með köflum og sums staðar skúrir síðdegis. Áfram N- og NA-átt á landinu, víða þetta 5-10 m/s. Reykjavík býr svo vel að þar veitir Esjan skjól fyrir NA-áttinni og því er spáð þar hægum vindi, nokkuð björtu veðri og hita fyrir vikið 14 til 16 stig yfir miðjan daginn, en 8 til 10 stig eftir að dimma tekur.  

 Sunnudagur 22. ágúst:

Spáð er eindreginni N-átt á landinu, víða 8-13 m/s.  Úrkomusvæði kemur upp að Norður- og Austurlandi og þar verður meira og minna samfelld rigning, þ.e. frá norðanverðum Vestfjörðum, austur um á firði.  Sunnanlands og vestan verður hins vegar þurrt og sums staðar bjartviðri.  Fremur svalt í veðri, en hiti þó allt að 14 til 17 stig þar sem best lætur sunnan- og suðvestanlands. 

Fleiri myndir (3)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði â...
Juki hraðsaumavél til sölu
Juki hraðsaumavél DLU-450 til sölu. Mjög lítið notuð. Frekari upplýsingar hjá Si...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...