Segja hringinn þrengjast
Lögreglumennirnir Björgvin Björgvinsson og Friðrik Smári Björgvinsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundinum. mbl.is/Júlíus
Eggvopnið, sem notað var til að ráða Hannesi Þór Helgasyni bana í húsi hans aðfaranótt sunnudag, fannst ekki á vettvangi og hefur ekki fundist þrátt fyrir leit lögreglu. Vopnið var oddhvasst og blað þess talið vera 2 sentimetrar á breidd. Líklega er um að ræða hníf sem er 15-20 sentimetrar á lengd.
Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hélt í dag um málið. Friðrik Smári Björgvinsson og Björgvin Björgvinsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu upplýstu blaðamenn um framvindu rannsóknar á morðinu í Hafnarfirði sl. sunnudag. Í máli þeirra kom fram að áverkar á höndum Hannesar hafi bent til átaka.
Rannsókn lögreglu hefur ekki leitt til þess að neinn sé í haldi grunaður um verknaðinn. Þá tók Friðrik Smári fram að það eitt að grunuðum mönnum sé sleppt þýði ekki að rannsóknin færist aftur á byrjunarreit, þvert á móti þrengist hringurinn í hvert sinn. Friðrik kvað rannsókn lögreglu fara þannig fram að allir séu útilokaðir þar til hin seki stendur einn eftir.
Lögreglan kveðst hafa rætt við hátt í fjórða tug manna vegna málsins. Flestir hafi komið á fund á lögreglustöð, sumir hafi rætt við lögreglu utan stöðvar en tveirvoru handteknir og færðir til yfirheyrslu.
Þá sagði lögreglan að þrátt fyrir að tveimur hafi verið sleppt úr haldi séu aðrir grunaðir í málinu.
Tæknirannsókn lögreglu er að ljúka. Lífsýna var aflað á vettvangi og hafa þau verið send til greiningar.
Í svörum lögreglu við spurningum blaðamanna kom fram að morðið á Hannesi væri ekki hefðbundið og rannsókn þess því viðamikil. Lögreglan játaði því að rannsókn væri nú einnig beint utan landsteina vegna þess að Hannes Þór átti í viðskiptum í útlöndum.
Lögreglan áréttar að morðið beri ekki þess merki að hinum almenna borgara stafi hætta af morðingjanum, þó erfitt sé að fullyrða um slíkt. Lögreglan telur ekki líklegt að tilviljun hafi ráðið því að morðinginn hafi ákveðið að fara inn í hús Hannesar.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. ágúst 2010, Innlent Flóknara morð með dýpri rætur
- Mánudagur, 30. ágúst 2010, Innlent Passaði við blóðugt skófar
- Föstudagur, 27. ágúst 2010, Innlent DNA-niðurstöður ekki komnar
- Fimmtudagur, 14. október 2010, Innlent „Veltur ekki á niðurstöðunum“
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent Manninum sleppt úr haldi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































