„Nú þarf Geir Waage að hætta“
„Ógæfu Íslensku Þjóðkirkjunnar verður allt að vopni þessa daga. Nú gengur sr. Geir Waage fram og lýsir sig reiðubúinn í nafni síns prestsembættis að þegja yfir níðingsskap á börnum. Mig setur hljóðan," segir sr. Bjarni Karlsson í Laugarneskirkju á bloggsíðu sinni á Eyjunni og telur ummæli og skrif sr. Geirs varða við brottrekstur úr embætti. Yfirskrift pistilsins er „Nú þarf Geir Waage að hætta“.
Sr. Geir Waage ritaði grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann sagði m.a. að leynd væri forsenda skrifta. Hún væri algjör eða engin. Ekki væri hægt að krefja prest sagna fyrir dómi um það sem hann hefði orðið áskynja við skriftir. Í samtali við Morgunblaðið sagði Geir ennfremur að þagnarskylda presta við sóknarbörn sín væri algjör og enginn millivegur þar á. Sagði Geir að prestar gætu ekki beygt sig undir barnaverndarlög, þar sem segir að tilkynningarskylda sé æðri siðareglum.
Í kjölfarið sendi Karl Sigurbjörnsson biskup frá sér yfirlýsingu þar sem hann áréttaði að tilkynningarskylda presta um refsiverð athæfi væri ofar þagnarskyldu presta.
Varðar við brottrekstur
Sr. Bjarni Karlsson vitnar í pistli sínum í Matteusarguðspjall, 18. kafla, 6. vers um það sem frelsarinn hafði að segja um barnaníð: „En hverjum þeim sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem á mig trúa, væri betra að vera sökkt í sjávadjúp með mylnustein hengdan um háls.“
Bjarni segir það háskalegt og varða hreinan brottrekstur úr prestsembætti að halda fram því sem sr. Geir Waage hafi gert. „Það verður að vera hafið yfir allan vafa að vígðir þjónar kirkjunnar setji öryggi barna og annarra sem ekki geta borið hönd yfir höfuð sér í forgrunn. Prestar eru og hafa lengi verið beinir aðlilar að barnaverndarstarfinu í landinu og presti ber að taka það skýrt fram við hvern sem vill trúa honum fyrir unnu ódæði gagnvart börnum að hann virði ekki trúnað um slíkt undir nokkrum kringumstæðum," skrifar Bjarni.
Hann segir ennfremur að hér sé ekki um mál að ræða sem þoli deildar meiningar. Trúverðugleiki kirkjunnar sem varnarþings mennskunnar í veröldinni sé í húfi í máli sem þessu.
„Mig furðar að sr. Geir leyfi sér að halda þessu fram, mótmæli orðum hans alfarið og hvet biskup til þess að skerast í leikinn af fullri einurð. Máttlaus viðbrögð hans og kirkjuráðs undanfarna daga í tengslum við mál Ólafs Skúlasonar eru þó ekki til þess fallin að vekja mikla von í þeim efnum. Það verður að segja það eins og það er. Íslenska Þjóðkirkjan stendur frammi fyrir miklum vanda á þessu sumri og þjóðin bíður þess með réttu hvernig prestar og yfirstjórn kirkjunnar ætla að vinna úr þeim trúnaðarbresti sem við blasir," segir sr. Bjarni í pistli sínum í gær.
Bloggað um fréttina
-
Hörður B Hjartarson - Getur orðið stormur í vatnsglasi ? -
Ragnheiður var að verða vonlaus -
Gísli Foster Hjartarson Þjóðkirkjan borðar börnin sín!!! -
S i g u r ð u r Sigurðarson Hálfpólitíkus prédikar hömlur á tjáningafrelsi -
Gísli Gíslason Kirkjan æðri lögum?? -
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir Það þarf að bryna kirkjuna -
Óðinn Þórisson Málefni kirkjunnar -
Kristján G. Arngrímsson Prinsipp eða mannúð? -
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Mulningur #52 -
Hreinn Sigurðsson Misskilningur Geirs. -
Heimir L Fjeldsted Mig setur hljóðan yfir lýðskrumi Bjarna Karlssonar -
Ragnar Kristján Gestsson Vox populi um trúnaðarbrest. -
Viggó Jörgensson Vill sr. Bjarni brenna sr. Geir á báli ? -
Haraldur Bjarnason Mikið var -
Guðsteinn Haukur Barkarson Enginn er yfir landslög hafinn -
Jóhann Elíasson YFIR HVERJU HVÍLIR ÞAGNARSKYLDA OG HVER ÁKVEÐUR ÞAÐ?????? -
Páll Vilhjálmsson Vöggustofufasismi samfylkingarréttrúnaðar -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Margar hliðar á þessu máli. Geir Waage má hafa skoðanir ...
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. ágúst 2010, Innlent Mun hér eftir sem hingað til hlýða tilkynningaskyldu
- Laugardagur, 21. ágúst 2010, Innlent Þagnarskyldan er algjör
- Fimmtudagur, 29. apríl 2010, Innlent Tóku ekki afstöðu
- Mánudagur, 23. ágúst 2010, Innlent Biskup segir ekki af sér
- Mánudagur, 23. ágúst 2010, Innlent Ríkari trúnaðarskylda samkvæmt lögum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“






































