Verri kostur að hætta núna
„Það er ekkert nýtt að þingflokkur Vinstri-grænna sé ekki alveg sammála í þessu máli,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, um þá skoðun Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að hætta skuli aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB).
„Það lá fyrir þegar þessi ríkisstjórn var mynduð að það yrði lögð fram tillaga fyrir Alþingi um viðræður við Evrópusambandið og við vitum alveg hvernig sú atkvæðagreiðsla fór í þingflokki VG. Þar voru skiptar skoðanir en meirihlutinn vildi að það yrði farið í þessar viðræður og niðurstaðan lögð fyrir þjóðina.“
Árni bendir á að í stjórnarsáttmálanum sé tekið fram að flokkarnir skuli virða sjónarmið hvors annars og þingmenn hafi rétt til að hafa uppi málflutning varðandi ESB, samkvæmt sinni sannfæringu.
„Jón er bara að lýsa sínum skoðunum og sjónarmiðum og ég virði það og ætlast til þess að mín sjónarmið séu líka virt.“
Árni segir mikilvægt að þjóðin taki ákvörðun um inngöngu í ESB í lýðræðislegri þjóðaratkvæðagreiðslu, en þá verði hún að hafa einhvern samning á borðinu til að kjósa um.
„Ég hef enga trú á því að ef menn myndu hætta þessu núna væri málið bara dautt og afgreitt. Umræðan og átökin myndu að sjálfsögðu halda áfram, án þess að þjóðin fengi að koma að þeim. Og það finnst mér verri kostur, líka fyrir þá sem eru andsnúnir aðild.“
Árni segir flokkinn skuldbundinn til þess að leyfa þjóðinni að ráða, það hafi komið fram á landsfundinum í fyrra.
„Þjóðin á að taka ákvörðun um örlög sín í þessu máli. Mér finnst það bara vera lýðræðislega rétt.“Bloggað um fréttina
-
Guðbjörn Jónsson Aðlögun að ESB áður en samningur er tilbúinn -
Gísli Foster Hjartarson Er Jón flón ....ja eða ekki? -
Jón Baldur L'Orange ,,Ekki hægt að blekkja alla þjóðina um aldur og ævi" -
Axel Jóhann Hallgrímsson Var umsóknin um ESB aðild bara jólakort? -
S i g u r ð u r Sigurðarson Er „einhver ölvun í gangi“ hjá VG? -
Jón Valur Jensson 10 millj. kr. ESB-styrkþeginn Árni Þór Sigurðsson getur reynt að ... -
Sigurður Haraldsson Talandi um lýðræði! -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Dæmigert um hin kommúnisku viðhorf innan VG -
Njörður Helgason Staðreyndir málsins! -
Tómas Ibsen Halldórsson Er "Samfylkingarmaðurinn" Árni Þór ekki í vitleysum flokki? -
Gunnar Heiðarsson Það er alltaf betri kostur að taka rétta ákvörðun -
Páll Vilhjálmsson Snákaást Árna Þórs á lýðræði -
Guðni Karl Harðarson Þjóðin samþykkti aldrei að fara í þessar viðræður! -
Rafn Gíslason ESB og lýðræðisást Árna Þórs.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 20. janúar 2011, Innlent Ráðherra hlíti fyrirmælum Alþingis
- Sunnudagur, 14. nóvember 2010, Innlent Segir hugmyndir Ögmundar óraunhæfar
- Miðvikudagur, 16. júní 2010, Innlent Árni Þór að hugsa um ESB
- Föstudagur, 14. maí 2010, Innlent Segir að viðræður við ESB hljóti að vera í uppnámi
- Sunnudagur, 26. júlí 2009, Innlent Vill fresta umsóknarferli ESB
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































