Margir skoða skepnuna
Margir hafa lagt leið sína að eyðibýlinu Ásbúðum á Skaga eftir að það spurðist út að þar hefði rekið á land steypireyð. Sjaldgæft er að þessi stærsta skepna jarðarinnar reki á fjörur hér á landi enda heldur hún sig venjulega djúpt norður af landinu og alls ekki á grunnsævi.
Starfskona Hafrannsóknarstofnunar hefur tekið sýni úr hvalnum til rannsóknar. Að sögn hennar er hér um að ræða tæplega 21 metra langa kvígu en ekki vildi hún geta sér til á þyngd skepnunnar.
Bændur í nágrenni við Ásbúðir eru ekkert hrifnir af hvalrekanum því þeir óttast að grútarmengun frá hræinu muni spilla æðarvarpi.
Þarf að draga á haf út
Ekki er árennilegt að urða hræið því gröfin þyrfti að vera eins og stór húsgrunnur að flatarmáli og mun dýpri. Eina ráðið til að forðast mengun af völdum hvalsins er sennilega að draga hræið á haf út og sprengja það þar eða sökkva á einhvern annan hátt. Til þess þarf öflugt skip því hér er sennilega um allt að 100 tonna flykki að ræða. Þá kemur strax upp spurningin um það hver eigi að borga fyrir slíkar aðgerðir.
Steypireyður er blágrá að lit en hræið í fjörunni er orðið ljóst af því að ysta lag húðarinnar hefur flagnað af að mestu. Fullvaxin steypireyður getur orðið 25 til 33 metrar að lengd og vegið allt að 190 tonnum. Hún er skíðishvalur og étur um fjögur tonn á dag á sumrin en aðalfæða þessarar stærstu skepnu jarðar eru ein minnstu dýr hafsins, krabbasvifdýr.
Steypireyður er alfriðuð frá árinu 1960.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Hreiðar Einhvern veginn finnst mér… -
Eiður Ragnarsson Einhverntíman.... -
Davíð Davíðsson Steypiryður rekin á fjöru -
Ingvi Rúnar Einarsson Hvar skal við skepnuna gera? -
Guðrún María Óskarsdóttir. Verkefni umhverfisráðherra að smíða reglugerð, eða hvað ?
Innlent »
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Heilar steypireyðar rekur sjaldan á land
- Fimmtudagur, 26. ágúst 2010, Innlent Náttúrufræðistofnun vill beinagrind
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Andstaða við Húnavallaleið
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Drengurinn flytur til Eyja
- Þriðjudagur, 31. ágúst 2010, Innlent Beinagrind á borði ríkisstjórnar
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin





































