Andlát: Steinn Þ. Steinsson dýralæknir
Hann fæddist í Reykjavík hinn 4. febrúar 1931, sonur hjónanna Þorkels Steinssonar og Margaret (Ritu) Steinsson, f. Ritchie, en hún var frá Pennan í Skotlandi.
Steinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1952. Á menntaskólaárunum lék hann í Herranótt en stundaði einnig knattspyrnu af kappi. Hann varð fjórfaldur Íslandsmeistari með meistaraflokki KR á „gullaldarárunum“ milli 1948 og 1952 og hafði áður orðið Íslandsmeistari í öllum yngri flokkum.
Veturinn 1952-1953 stundaði Steinn nám í læknisfræði við Háskóla Íslands, en haustið 1953 hélt hann til Kaupmannahafnar og hóf þar nám í dýralækningum.
Eftir lokaprófið árið 1959 var Steinn aðstoðardýralæknir hjá Jóni Pálssyni á Selfossi um skeið en hélt þá til Kaupmannahafnar á ný og starfaði við almenna sýklafræði við Det Veterinære Serumlaboratorium.
Árið 1960 var hann skipaður héraðsdýralæknir í Skagafirði. Því starfi gegndi hann í tæp 30 ár en árið 1989 var honum veitt embætti héraðsdýralæknis í Gullbringu- og Kjósarsýslu sem hann sinnti til ársins 1999. Hann stóð að stofnun og byggingu Dýraspítalans í Víðidal og vann þar í hlutastarfi um nokkurra ára skeið, og þar lauk hann farsælum starfsferli sínum.
Steinn var annálaður dýralæknir, ekki síst fyrir lækningar á kúm, kindum og hrossum. Þá hafði hann yndi af útiveru og veiðiskap.
Kona Steins var skólasystir hans úr menntaskóla, Þorgerður Friðriksdóttir, f. 1932. Þau eignuðust fjögur börn. Þorgerður lést um aldur fram árið 1983. Vinkona Steins hin síðari ár var Bryndís Guðmundsdóttir.
Steinn verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. september kl. 13.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 8. janúar 2011, Innlent Andlát: Helga Bachmann
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Jens P. Guðjónsson gullsmiður látinn
- Mánudagur, 3. janúar 2011, Innlent Andlát: Páll Gíslason
- Miðvikudagur, 6. apríl 2011, Innlent Andlát: Finnbogi Guðmundsson
- Laugardagur, 14. maí 2011, Innlent Andlát: Jón Kr. Sólnes
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































