Dómari þarf ekki að víkja
Dómur Hæstaréttar í kærumáli Ragnars Aðalsteinssonar, verjanda fjögurra af þeim níu einstaklingum sem eru ákærðir fyrir árás á Alþingi, varðandi vanhæfi héraðsdómara féll nú á fjórða tímanum. Staðfesti Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms sem synjaði því að dómari viki í málinu.
Ragnar Aðalsteinsson segir að engar röksemdir fylgja dómi Hæstaréttar. Dómurinn fékk greinargerð hans í gær en ákæruvaldið skilaði ekki inn greinargerð í málinu.
Segir Ragnar að Hæstiréttur vísi í forsendur héraðsdóms .
Hann segir það valda vonbrigðum að dómstóllinn skuli ekki svara. „Ég er ekki að leika mér að því að skrifa fimmtán blaðsíðna greinargerð ef ég meinti ekkert með því," segir Ragnar í samtali við mbl.is
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði nýverið kröfu Ragnars um að dómari í máli nímenninganna víki. Ragnar rökstuddi þá kröfu með því að, dómarinn hefði, með því að hafa lögreglu í dómhúsinu, nánast fyrirfram lýst yfir sekt sakborninganna og komið í veg fyrir að þeir nytu réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi, eins og þeim sé áskilinn í stjórnarskrá.
Pétur Guðgeirsson, héraðsdómari, sagði í niðurstöðu sinni, að ákvörðun um að hafa lögreglu tiltæka í dómhúsinu, hefði ekki verið beint gegn ákærðu í málinu heldur miði hún að því að tryggja frið og reglu í þinghöldunum og þar með að því að gæta réttar og hagsmuna allra málsaðila.
Ragnar kærði úrskurð Péturs til Hæstaréttar, sem hefur nú hafnað beiðni hans og því mun Pétur Guðgeirsson áfram vera dómari í málinu í héraði.Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 26. ágúst 2010, Innlent Ekki munnlegur málflutningur um kæru
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent Dómari víkur ekki sæti
- Mánudagur, 19. júlí 2010, Innlent Dómar Hæstaréttar ógna stöðugleika
- Miðvikudagur, 25. maí 2011, Innlent Dómari lagði fram ljósmynd
- Þriðjudagur, 17. ágúst 2010, Innlent Efast um óhlutdrægni dómara
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































