Niðurstaða Barniers byggð á áliti ESA
Svör Michels Barniers, sem situr í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, til norsks fjölmiðils um innistæðutryggingar, byggðust á áliti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), sem telur að Ísland hafi brotið gegn ákvæðum EES-samningsins í Icesave-málinu. Þetta kemur fram í bréfaskrifum milli Barniers og íslenska fjármálaráðuneytisins.
Barnier svaraði skriflegum spurningum frá norska fréttavefnum ABC Nyheter um atriði, sem varða innleiðingu og framkvæmd tilskipunar
um innstæðutryggingar. Í svörunum er m.a. lýst því áliti, að framkvæmd íslenskra stjórnvalda á þessari tilskipun hafi verið áfátt því þau hafi ekki séð til þess að tryggingakerfið, sem komið var á
fót á grundvelli skuldbindinga í þesari tilskipun væri nægilega öflugt miðað við
stærð og áhættu í íslenska bankakerfinu.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fór þess á leit að framkvæmdastjórnin léti í té skýringar á því á
hvern hátt komist hefði verið að þessari niðurstöðu og hvaða aðferðafræði hefði
verið beitt í því skyni. Þá var þess óskað að skýrt yrði á nákvæmari hátt að
hvaða leyti framkvæmdastjórnin teldi innleiðingu tilskipunarinnar ófullnægjandi
hér á landi og gerð grein fyrir, helst með vísan til ákveðinna tilvika, að hvaða
marki tilskipunin væri innleidd á annan hátt í aðildarríkjum Evrópusambandsins
og hvernig það stæðist samanburð við innleiðinguna hér á landi.
Í svari Barniers kom fram að niðurstaða hans byggðist ekki á eigin athugun framkvæmdastjórnarinnar heldur væri hún algerlega reist á áliti ESA á málinu. Samkvæmt því kæmi ábyrgð ríkisins á innstæðutryggingum ekki til ef tryggingakerfi, sem komið væri á fót samkvæmt tilskipuninni, gæti staðið innstæðueigendum skil á tryggingunni. Með vísan til þess virtist sem sú hefði ekki verið raunin á Íslandi m.t.t. innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi.
Barnier tók fram að sér væri ekki kunnugt um að sams konar tilvik hefðu komið upp annars staðar í Evrópu, en lét að öðru leyti ósvarað beiðni fjármálaráðherra um að skýra með dæmum á hvern hátt innleiðing tilskipunarinnar hafi verið með öðrum hætti þar.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. ágúst 2010, Innlent Ólíkar forsendur fyrir greiðsluskyldu
- Miðvikudagur, 27. apríl 2011, Innlent Stjórnvöld svara ESA á mánudaginn
- Föstudagur, 30. júlí 2010, Innlent Innleidd án athugasemda
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Segir Breta hafa hótað
- Fimmtudagur, 29. júlí 2010, Innlent Breytir engu í grundvallaratriðum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































