Tekur pólitískri gagnrýni of persónulega
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og forseta borgarstjórnar, þykir færsla Jóns Gnarr borgarstjóra, á síðunni Dagbók borgarstjóra, bera þess merki að borgarstjóri taki pólitískum umræðum of persónulega.
„Það eina sem ég get sagt er að það er partur af lýðræðinu og partur af allri samvinnu að skiptast á skoðunum. Og við höfum auðvitað ekki verið sammála um allt en borgarstjóri má ekki taka þeirri pólitísku umræðu of persónulega.“
Hanna Birna segir umræðuna snúast um hag borgarbúa og Sjálfstæðismönnum þyki að honum hafi verið vegið að undanförnu.
„Það er ekkert launungarmál að við Sjálfstæðismenn höfum gagnrýnt núverandi meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar fyrir að nýta sumarið ekki nægilega vel til að finna góðar leiðir til hagræðingar í borgarkerfinu.“
„Við höfum mjög markvisst hafnað þeirri leið að hækka gjaldskrár og skatta á íbúa eins og nú virðist stefna í, því miður. Það getur vel verið að borgarstjóri sé að vísa til þess og að hann upplifi þessa hörðu afstöðu okkar gegn skattahækkunum sem „hroka“ eða „töffaragang“ en það er ekkert annað en hlutverk okkar. Okkur finnst bara ekkert broslegt við hærri álögur á íbúa.“
Þá ítrekar Hanna Birna að Sjálfstæðismenn séu ekki í meirihlutasamstarfi með Besta flokknum en minna hafi farið fyrir samvinnu á vettvangi borgarstjórnar undanfarið en áður hafi verið.
„Meirihlutinn hefur sagt að það sé vegna sumarleyfa og menn séu að finna sinn stað svo við höfum sýnt því skilning.“
Henni þykir þó kveða við annan tón hjá borgarstjóra sem hafi einungis fyrir nokkrum dögum talað um að honum þætti miður að meirihlutinn hafi ekki staðið sig nógu vel í samvinnunni.
Fyrst og fremst snúist vinnan í borgarstjórn um málefni borgarbúa en ekki persónur. „Lýðræðið kallar á það að menn skiptist á skoðunum og fyrir því mega menn ekki vera of viðkvæmir.“
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Fúlir og alltaf á móti -
Jóhannes Ragnarsson Hanna Birna á alla mína samúð -
Gísli Foster Hjartarson Var Gnarr-inn að grínast? -
Jón Halldór Guðmundsson Hanna er ekki persóna! -
Óðinn Þórisson Jón Gnarr og Besti flokkurinn -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Hanna Birna misskilur Jón Gnarr ! Herfilega ! -
Ásdís Sigurðardóttir Hagur borgarbúa no. 1, 2 og 3. -
Guðbjörn Jónsson Gagnrýni þarf að vera heiðarleg -
Ólafur Ingi Hrólfsson Hanna Birna hætti sem forseti borgarstjórnar. -
Sigurður Haraldsson Sjálfstæðismenn.
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 27. ágúst 2010, Innlent Einlægur borgarstjóri efast um samvinnu
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent Samþykkt að halda reglulega vinnufundi
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Innlent Jón Gnarr með lyklavöldin
- Þriðjudagur, 19. apríl 2011, Innlent Sjálfstæðismenn gríðarlega svekktir
- Miðvikudagur, 20. apríl 2011, Innlent „Við þökkum þeim fyrir þeirra framlag“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































