Segjast skilja gagnrýnina
„Ég lít ekki svo á að þar með sé málinu lokið og skoða gagnrýni Hreyfingarinnar í því ljósi,“ segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, um afgreiðslu allsherjarnefndar á frumvarpi um framlög til stjórnmálasamtaka. Mörður á sæti í nefndinni. Valgerður Bjarnadóttir er sama sinnis.
„Mér finnst þetta athyglisvert og alls ekki fráleitt. Á hitt ber að líta að þetta eru umbætur. Ég lít ekki svo á að málið sé afgreitt með þessu frumvarpi,“ segir Mörður aðspurður um gagnrýni Hreyfingarinnar.
„Hins vegar er þetta bót frá því sem nú er. Málinu er ekki lokið. Það er mín afstaða í hnotskurn.“
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi og var það síðan sent úr 1. umræðu til meðferðar allsherjarnefndar. Nefndin hefur nú afgreitt frumvarpið með umsögn til 2. annarrar umræðu á Alþingi.
Kann málið að koma aftur til kasta nefndarinnar áður en það verður samþykkt eftir 3. umræðu í þinginu. Frumvarpið er aðgengilegt hér.
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður og flokkssystir Marðar, á einnig sæti í nefndinni.
Líkt og Mörður kveðst Valgerður skilja gagnrýni Hreyfingarinnar en hún tekur einnig fram að þetta sé ekki lokaáfangi í málinu.
„Það þarf að stíga eitt skref í einu. Þetta er ekki allsherjar lausn á vandanum. Frumvarpið felur í sér meira gagnsæi. Það er alveg á hreinu. Þetta er hins vegar ekki mjög stórt skref. Þannig að ég get að hluta til tekið undir þá gagnrýni að við þurfum að taka málið til gagngerrar endurskoðunar,“ segir Valgerður.
Innlent »
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 30. ágúst 2010, Innlent Gagnrýna afgreiðslu allsherjarnefndar
- Mánudagur, 27. september 2010, Innlent Alvarleg vanræksla og stórkostlegt gáleysi
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Innlent Vilja breyta lögum um landsdóm
- Þriðjudagur, 22. febrúar 2011, Innlent Sökuðu Mörð um að tefja breytingu á lögreglulögum
- Sunnudagur, 15. maí 2011, Innlent Arðsemin hverfur úr greininni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































