Beinagrind á borði ríkisstjórnar
Beinagrind steypireyðar, sem nýlega rak á land á Skaga, kom á borð ríkisstjórnarinnar í morgun. Þó ekki bókstaflega. Þær Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra óskuðu eftir tveggja milljóna kr. fjárveitingu til að bjarga beinagrind steypireyðarinnar.
Í minnisblaði ráðherranna tveggja til ríkisstjórnarinnar segir m.a. að slíkur hvalreki sem varð í landi Ásbúða á Skaga sé sjaldgæfur. Þar er bent á að steypireyður sé stærsta dýr sem lifað hefur á jörðinni svo vitað sé. Hvalategundin hefur verið alfriðuð frá 1966 og er enn í mikilli útrýmingarhættu.
Talið er að hér við land séu innan við þúsund steypireyðar. Mjög sjaldgæft er að heilar steypireyðar reki hér á land, vitað er um tvö óstaðfest tilvik frá árinu 1980. Ráðherrarnir benda á að engin beinagrind sé til af steypireyði hér á landi og aðeins örfáar til í heiminum. Slík beinagrind hafi því mikið sýningar- og fræðslugildi.
Einnig kemur fram að Náttúrufræðistofnun hafi þegar gert ráðstafanir til að varðveita beinagrindina. Nauðsynlegt er að taka skíði og bægsli hvalsins sem fyrst. Þá hefur Hafrannsóknastofnunin tekið sýni úr hvalnum.
Áætlaður kostnaður við að sækja beinagrind hvalsins, verka hana, flytja og geyma er áætlaður ekki undir tveimur milljónum króna. Því er ljóst að hvorki Náttúrufræðistofnun Íslands né Náttúruminjasafnið hafa fjárhagslegt svigrúm til að standa undir þessum aukakostnaði.
Þá segja ráðherrarnir að skoða þurfi hvar best verði að varðveita beinagrindina til lengri tíma. Umhverfisráðuneytið og menntamálaráðuneytið munu ræða það mál að höfðu samráði við Náttúrufræðistofnun og Náttúruminjasafn Íslands.
Bloggað um fréttina
-
Rafn Gíslason Til skammar. -
Ólafur Ragnarsson " nályktin" -
Brynjar Þór Guðmundsson Fundvís einstaklingur óskast -
Ásdís Sigurðardóttir Ég legg til að þetta verði gert með einkaframtaki. -
Haraldur Bjarnason Eins gott að þeir nagi fljótt af þeim
Innlent »
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Heilar steypireyðar rekur sjaldan á land
- Fimmtudagur, 3. mars 2011, Innlent Sýna geirfuglinn á opnu húsi
- Laugardagur, 5. mars 2011, Innlent Fjölmenni á opnu húsi
- Mánudagur, 30. ágúst 2010, Innlent Ákveða verkun hvalsins í vikunni
- Miðvikudagur, 15. september 2010, Innlent Steypireyður flutt suður
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































