Dreamliner þotan lent í Keflavík
Nýja Dreamliner þotan, Boeing 787 lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun en hún er hingað komin til prófana í hliðarvindi. Að sögn Friðþórs Eydal, upplýsingafulltrúa flugvallarins, er fyrst og fremst um lendingaræfingar að ræða en Keflavíkurflugvöllur er þekktur fyrir sterka vinda.
„Ísland er inni á lægðabraut sem þýðir að það er sífellt að breytast vindáttin,“ segir Friðþór. „Flugvellir erlendis eru venjulega bara með einni eða tveimur samsíða brautum sem liggja i sömu átt því vindar eru stöðugir á sömu áttinni, en hér eru bæði fjölbreyttari áttir og oft á tíðum verulegur vindur. Vegna þessara aðstæðna var Keflavíkurflugvöllur, eins og Reykjavíkurflugvöllur, lagður þannig að það eru nokkrar brautir sem skarast. Þetta þýðir að hann er mjög hentugur í þessu sambandi því þá er hægt að æfa á annarri brautinni þar sem vindurinn stendur þvert á, á meðan hin brautin er í notkun og þar má þá lenda ef á þarf að halda. Það eru þessar aðstæður sem menn sækjast eftir."
Þetta er því ekki í fyrsta skipti sem nýjar vélar koma hingað til æfinga. Í hitteðfyrra kom t.d. nýjasta risaflugvélin frá Airbus, A-380, fjórum sinnum hingað til æfinga. Dreamliner 787 þotunnar hefur verið beðið með mikillar eftirvæntingu en framleiðslu hennar hefur nokkrum sinnum verið frestað. Um er að ræða fyrstu nýju þotu Boeing í meira en áratug.
Dreamliner þotan verður allt að viku hér við æfingar og bendir Friðþór á að flugáhugamenn geti fylgst með lendingaræfingunum utan flugvallarsvæðisins, auk þess sem fjölmiðlum verður boðið á sérstaka kynningu á vélinni.
Innlent »
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 4. september 2010, Innlent Ánægðir með íslenskar aðstæður
- Fimmtudagur, 29. september 2011, Innlent Prófa nýja Boeing-þotu hér
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Vélarnar farnar frá Reykjavík
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Innlent Mikill viðbúnaður í Keflavík
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Innlent Farþegar vélar American Airlines farnir
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































