Bærinn ekki á kúpunni

Smáeyjar við Heimaey.

Smáeyjar við Heimaey. mbl.is/Sigurgeir Jónasson

„Að gefnu tilefni vill Vestmannaeyjabær því taka af öll tvímæli um það að bærinn á ekki við neinn fjárhagsvanda að stríða og þarf ekki að grípa til neinna ráðstafanna til að rétta við rekstur sinn,“ segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Vestmannaeyja.

Tilkynningunni, sem Sigurbergur Ármannsson, fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar, og Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, skrifa undir er ætlað að svara fréttum um erfiða stöðu bæjarsjóðs en þar hafna þeir þeirri niðurstöðu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga að bærinn eigi við skuldavanda að etja.

„Hin meinta skuldbinding kemur því aldrei til með að hafa áhrif á rekstur Vestmannaeyjabæjar,“ segir í bréfinu með vísan til hagnaðar af rekstri bæjarsjóðs og samsetninga langtímaskulda bæjarins. 

Tilkynningin er svohljóðandi:

„Í fréttum í fjölmiðlum hefur komið fram að Vestmannaeyjabær sé meðal þeirra sveitarfélaga sem fengið hafi aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og er óskað eftir upplýsingum um það hvernig sveitarstjórn hyggist bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélagsins. Vanda sem ekki er til staðar.

Að gefnu tilefni vill Vestmannaeyjabær því taka af öll tvímæli um það að bærinn á ekki við neinn fjárhagsvanda að stríða og þarf ekki að grípa til neinna ráðstafanna til að rétta við rekstur sinn. Að halda slíku fram er fjarstaða og gerir það eitt að draga úr trúnaði þeirra sem til þekkja á Eftirlitsnefndinni.

Vestmanneyjabær telur að mikils misskilnings gæti í athugasemdum Eftirlitsnefndarinnar og að hún hafi ekki kynnt sér rekstur og stöðu Vestmannaeyjabæjar nægilega vel til að komast að þeirri niðurstöðu að fjárhagsstöðu sveitarfélagsins gæti stefnt í óefni. Unnið er í því að svara Eftirlitsnefndinni og hafa stjórnendur Vestmannaeyjabæjar þegar óskað eftir fund með nefndinni til að fara yfir rekstur bæjarins. Málið hefur enda þegar valdið Vestmannaeyjabæ miklum skaða og mikilvægt að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga leiðrétti tafarlaust þann misskilning sem hún hefur komið af stað um rekstrarvanda Vestmannaeyjabæjar.

Rekstur Vestmannaeyjabæjar var jákvæður um 329 milljónir á síðasta ári og er það þriðja árið í röð sem reksturinn er jákvæður. Í árslok 2009 átti Vestmannaeyjabær handbært fé í formi bankainnistæðna upp á tæpa 3,6 milljarða og hafði þá greitt niður skuldir fyrir rúmlega 2,5 milljarða á tveimur árum.

Heildarskuldir og skuldbindingar Vestmannaeyjabæjar í árslok 2009 námu rúmum 7 milljörðum króna, en þar af nema skuldir við lánastofnanir einungis rúmum 1,2 milljörðum, eða um 39% af tekjum sveitarfélagsins. 1,2 milljarður af skuldbindingum bæjarins eru fyrirfram fengnar tekjur vegna neðansjávarlagnar sem verða tekjufærðar á móti afskriftum á næstu 35 árum. Slíkt fyrirkomulag var viðhaft að beiðni fjármálaráðuneytisins sem fjármagnaði stofnkostnað.

Hin meinta skuldbinding kemur því aldrei til með að hafa áhrif á rekstur Vestmannaeyjabæjar. Önnur skuldbinding Vestmannaeyjabæjar er reiknuð lífeyrisskuldbinding upp á 2,4 milljarða sem mun koma til greiðslu á næstu 50-60 árum og því fráheyrt að um bráðavanda sé að ræða. Að auki er skuldbinding upp á 1,9 milljarða sem eru framtíðar leigugreiðslur til Fasteignar sem mun falla til á næstu 24 árum. Vart þarf að geta þess að allar greiðslur Vestmannaeyjabæjar til Fasteignar hf. eru í skilum og hluti af föstum rekstrartölum. Að draga slíkar skuldbindingar inn í umræðu um rekstrarvanda er í besta falli furðulegt.

Í bréfi Eftirlitsnefndarinnar til Vestmannaeyjabæjar kemur fram að hún hafi þá skoðun að hlutverk sveitarfélags sé ekki að ávaxta fjármuni umfram þá sem nauðsynlegir eru í hefðbundum rekstri en telur niðurgreiðslu skulda farsælli fjármálastjórnun til lengri tíma litið. Vestmannaeyjabær telur að í þessari ályktun kristallast það að nefndin hefur ekki kynnt sér rekstur bæjarins síðustu ár. Vestmannaeyjabær hefur einmitt síðastliðin 4 ár og þá sérstaklega eftir bankahrun kappkostað að greiða niður sín lán við lánastofnanir og ekki hafa verið tekin nein ný lán hjá lánastofnunum í um 5 ár. Á síðastliðnum 4 árum hefur bærinn greitt niður lán fyrir rúma 2,5 milljarða. Það má í raun segja að einn helsti fjárhagsvandi Vestmannaeyjabæjar á síðasta ári hafi verið sá að bærinn fékk ekki heimild frá lánveitanda að greiða niður öll þau lán sem hann óskaði eftir. Þeir 1,2 milljarðar sem bærin skuldaði til lánastofnanna um áramót samanstanda fyrst og fremst af lánum sem bærin hefur ekki fengið heimild til að greiða niður. Geta og vilji hefur hvorutveggja verið til staðar. Án frekari uppgræðslu lána mun Vestmannaeyjabær verða skuldlaus við lánastofnanir eftir 7 ár.

Árið 2009 var hanbært fé frá rekstri hjá Vestmannaeyjabæ 724 milljónir. Vart þarf að benda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga á þá hefur þegar verið gert ráð fyrir bæði greiðslu til Fasteignar hf og lífeyrisskuldbindingum. Þetta er það fjármagn sem er afgangs til að mæta afborgunum og fjárfestingahreyfingum, og í þessu samhengi má benda á að áætlaðar afborganir langtímalána nema á þessu ári um 140 milljónum.

Vestmannaeyjabær fékk fyrst upplýsingar um það í fjölmiðlum að Eftirlitsnefndin væri að senda frá sér bréf vegna ætlaðs fjárhagsvanda okkar. Slíkt eru ámælisverð vinnubrögð og til þess fallið vekja upp vangaveltur um tilgang slíkra erinda.

Aðferðir Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga hafa haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir bæjarfélag sem hefur öll tök á að vinna sig hratt og örugglega úr kreppu sem það ber enga ábyrgð á. Á þenslu tímum greiddi Vestmannaeyjabær niður lán og hélt að sér höndum í framkvæmdum. Það er vægast sagt stórfurðulegt að fá í kjölfarið ákúrur frá eftirlitsnefnd fyrir það fyrirkomulag.

Vinnubrögð Eftirlitsnefndar með fjárumálum sveitarfélaga eru ámælisverð og gera það eitt að skaða ennfrekar ímynd eftirlitsstofanna á Íslandi.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TEXASBORGARAR
Heimagerðir hamborgarar og franskar úr 100% gæðahráe...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR FATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin.is/...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
Húsnæði undir veitingarekstur til leigu.
Tilbúinn veitingastaður/bar til leigu á Laugavegi 55, laust strax. Um er að r...
 
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....