Betri staða efnahagsmála en búist var við
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ítrekaði á Alþingi í dag að heildarmynd efnahagsmála væri mun bjartari en áður hefði verið spáð. Rétt væri hins vegar að nýjar upplýsingar sýndu að hagvöxtur væri nú minni en menn hefðu reiknað með.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, að í umræðum um stefnu og störf ríkisstjórnarinnar í gær hefðu Jóhanna og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, dregið upp ótrúlega glansmynd af stöðu efnahagsmála, sem ætti lítið skylt við raunveruleikann.
Einar sagði það rétt, að samdráttur í landsframleiðslu hafi orðið minni á síðasta ári en gert var ráð fyrir og kreppan varð ekki eins djúp og óttast var. Það væri hins vegar fyrst og fremst að þakka stefnumótun fyrri ríkisstjórnar um samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Nú væru hins vegar verk eða verkleysi ríkisstjórnarinnar að koma í ljós en Hagstofan hefði í morgun birt tölur sem sýndu, að landsframleiðsla dróst saman um 3,1% að raungildi milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Spurði Einar hvernig stæði á því að tölurnar væru með þessum hætti og hvort verið gæti, að ekki væri allt jafn blúndulagt og gott í efnahagsmálum, og ráðherrar vildu vera láta.
Sjá ekki ljósið
Jóhanna sagði, að enn og aftur gætti þess í umræðunni, að stjórnarandstaðan sjái ekki ljósið framundan í efnahagsmálum. Fyrir lægi, að hagvöxtur hefði mælst á síðustu ársfjórðungum, hálfu ári fyrr en áætlað var, og þess sæi merki í fjárlagagerðinni nú, þótt rétt væri, að spár um hagvöxt nú væru lægri en menn reiknuðu með.
Einar sagði, að Jóhanna hefði beitt Kína-Albaníuaðferðinni og skammað sig fyrir boðskap Hagstofunnar. Ljóst væri hins vegar, að ríkisstjórnin væri með aðgerðaleysi sínu, að hægja á þeim bata, sem ella hefði verið uppi á borðum.
Bloggað um fréttina
-
Vilborg G Hansen Afleiðingar hrunsins enn að koma fram. -
Lísa Björk Ingólfsdóttir Leyfist ráðherrum allt? -
Geir Ágústsson Eyðsla á neyslulánum = hagvöxtur?
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent Minni þörf á skattahækkunum
- Fimmtudagur, 17. mars 2011, Innlent Fjárfesting fari í 18-20%
- Föstudagur, 2. september 2011, Innlent Höfum náð árangri
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent „Verkefnið er að takast“
- Fimmtudagur, 4. nóvember 2010, Innlent Samstöðuleysi tefur endurreisn
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í S...




































