Gríðarlegt högg á flutningskerfið
mbl.is/Einar Falur
Guðni Einarsson gudni@mbl.is
Víðtæk truflun varð á flutningi raforku í fyrrakvöld. Svo virðist sem atburðarásin hafi byrjað með bilun í rofa í álveri Norðuráls á Grundartanga kl. 20.58 í fyrrakvöld. Allt rafmagn fór af álverinu. Það samsvarar um fjórðungi af heildarálagi í landinu, samkvæmt tilkynningu Landsnets.
Þetta olli keðjuverkandi áhrifum í flutningsnetinu. Töluvert flökt var á spennu um allt land og straumlaust varð um tíma hjá almenningi á Austfjörðum, frá Eyvindará og niður á Vopnafjörð og upp á Hérað. Einnig fór rafmagn af á Höfn í Hornafirði.
Hlutar af álagi álversins í Straumsvík og Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga leystu einnig út. Truflunin varð einnig til þess að nokkrar vélar virkjana slógu út um stund, m.a. í Hellisheiðarvirkjun og í Lagarfossvirkjun.
Ljósin blikkuðu tvisvar
Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, telur ljóst að upphaf truflananna megi rekja til háspennubilunarinnar í Norðuráli.„Það kemur gríðarlegt högg á kerfið sem veldur því að ljósin blikka tvisvar um allt land og í kjölfarið leysir Norðurál út. Það er einn af stærstu viðskiptavinum okkar og við þetta varð gríðarlega mikil breyting á orkuflæðinu,“ sagði Guðmundur. Fyrir hádegi í gær hafði ekki fengist fullnægjandi skýring á því hvers vegna almennir neytendur urðu rafmagnslausir í fyrrakvöld. Guðmundur taldi langlíklegast að það hefði stafað af bilun í búnaði fyrir austan.
Hann sagði að við jafn mikla breytingu á raforkuflæði í flutningskerfinu og þá sem varð í fyrrakvöld brygðist flutningskerfið á svæði byggðalínunnar þannig við að það leystist upp í „eyjar“ til að vernda aðra notendur.
Byggðalínan nær frá Hvalfirði norður og austur um land og síðan um Suðurland að Sigölduvirkjun. Við bilunina skiptist flutningskerfið í þrjá hluta, það er Norðurland, Kárahnjúkavirkjun, Fljótsdalsstöð og Fjarðaál, og svo suðvesturhornið.
Hluti vandans er sá að byggðalínan er nú fulllestuð og ber ekki meira álag, að sögn Guðmundar. Ef auka þarf flutning á hennar svæði þarf að styrkja byggðalínukerfið. Það er umfangsmikil og kostnaðarsöm framkvæmd. Í skoðun er m.a. uppbygging línunnar á milli Blönduvirkjunar og Akureyrar með svonefndri Blöndulínu 3.
Innlent »
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 10. september 2010, Innlent Rannsaka aðra rafkerfisbilunina á rúmlega viku
- Fimmtudagur, 9. september 2010, Innlent Víðtækar rafmagnstruflanir
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Innlent Allir aftur komnir með rafmagn
- Mánudagur, 18. október 2010, Innlent Aftur bilun hjá Norðuráli
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Innlent Rafmagnslaust víða fyrir austan
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































