Mikil eyðilegging í miðborginni
Hjörtur Arason sem býr í borginni Christchurch, annarri stærstu borg Nýja-Sjálands, segir að eyðilegging blasi víða við í miðborginni. Hann og eiginkona hans, Hera Hjartardóttir, sluppu ómeidd og eins foreldrar Heru og bróðir sem einnig búa á svæðinu.
Að sögn Hjartar eru það einkum gömul hús sem hafa hrunið eins og spilaborgir en nýrri hús virðast hafa staðið af sér skjálftann sem mældist 7,2 stig. Hann segir að sírenuvæl heyrist úr öllum áttum og sjúkrabifreiðar út um allt en mbl.is náði sambandi við Hjört er hann var á ferð um miðborg Christchurch að kanna aðstæður. Ekki hafa borist fregnir af slysum á fólki eða dauðsföllum enn sem komið er. Þar sem allt rafmagn fór af borginni er erfitt að gera sér grein fyrir ástandinu þar sem skjálftinn reið yfir um fimmleytið að nóttu til á staðartíma og myrkur. Eins er allt vatnslaust.
Hjörtur segir að einhverjir munir hafi eyðilagst á heimili hans og Heru og innbúið allt út um allt en þau búa í um fimm mínútna fjarlægð frá miðborg Christchurch.
Hjörtur hefur búið um nokkurra ára skeið á Nýja-Sjálandi og starfar sem smiður þar. Hera, eiginkona hans sem er tónlistarmaður, hefur hins vegar búið lengi á Nýja-Sjálandi ásamt foreldrum og bróður.
Innlent »
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. febrúar 2011, Innlent Hrikalegar afleiðingar
- Þriðjudagur, 7. september 2010, Innlent Nýkomin þegar skjálftinn varð
- Sunnudagur, 5. september 2010, Innlent „Var líklega ekki sá stóri“
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Glerbrot um allt húsið
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Sprenging í friðsælu hverfi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































