Óbreytt efnistök Stöðvar 2

Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. stækka

Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Ómar Óskarsson

Ari Edwald, forstjóri 365-miðla, segir efnistök fréttastofu Stöðvar 2 munu verða með svipuðu sniði og verið hefur en greint var frá því í dag að Freyr Einarsson yrði ritstjóri fréttastofunnar og Vísis.is. Freyr hefur verið bráðabirgðafréttastjóri síðan Óskar Hrafn Þorvaldsson lét af störfum í maí.

Frey við hlið var Kristján Már Unnarsson fréttamaður sem gegndi stöðu varafréttastjóra og verður sá síðarnefndi nú fréttastjóri stöðvarinnar.

Gunnar Reynir Valþórsson verður hins vegar fréttastjóri Vísis.

Aðspurður hvort breytingarnar eigi sér langan aðdraganda svarar Ari því til að þær séu liður í stöðugri þróun.

„Þetta hefur verið að mótast, bæði samstarf miðlanna og skipulagið á stjórnuninni. Okkur sýnist að það sé skynsamlegast að setja þetta með svipuðum hætti ljósvakamegin eins og í blaðaútgáfunni, að hafa ritstjóra yfir sviðinu og svo fréttastjóra undir honum, sem reka annars vegar fréttastofu Stöðvar 2 og fréttastofu Vísis.is.

Svo er verið að festa í sessi stöðu framleiðslustjóra Stöðvar 2-megin, þar sem fer Eva Georgsdóttir, og stöðu vefstjóra Vísis.is sem verður Tinni Sveinsson.

Þetta er fyrirkomulag sem hefur verið að þróast eftir síðustu breytingar. Við höfum leyft reynslunni að móta það svolítið.“

Ari segir að á næstu vikum muni lesendur vefjarsins Visir.is taka eftir frekari breytingum á útliti hans, auk þess sem haldið verði áfram að breyta útliti Fréttablaðsins.

Hann segir fréttastofu Stöðvar 2 hafa „sótt gríðarlega í sig veðrið með þeim áherslubreytingum sem hafi verið farið í gegnum síðustu misseri“.

„Það hefur tekist að lækka framleiðslukostnað og komið í ljós að breytingar í efnistökum hafa átt vinsældum að fagna. Því áhorfið er nú fast að því tvöfalt miðað við það sem það var fyrir tveimur árum. Stöð 2 og Vísir.is hafa verið að sækja í sig veðrið jafnt og þétt og við erum að sjálfsögðu að hugsa þetta þannig að breytingarnar styðji við þá þróun.“

- Megum við eiga von á öðruvísi efnistökum?

„Nei, ekki á fréttastofu Stöðvar 2 geri ég ráð fyrir. Þarna eru sömu yfirmenn og hafa verið,“ segir Ari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.

Ákærður fyrir að stinga mann

14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »
Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.

Klára kvótamálin í vikunni

14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FORD TAURUR bSES 2002
Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumardekk + vetrar sami eigandi í 9á...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði â...
Viftur -mikið úrval -tilboð á 12V viftum
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
 
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...