Ánægðir með íslenskar aðstæður
„Ég er mjög ánægður með aðstæðurnar hér og móttökur flugumferðarstjóra og annarra starfsmanna flugvallarins og þeirra sem hafa aðstoðað okkur,“ sagði Randall Lee Neville, flugmaður hjá Boeing sem hefur síðustu daga verið við flugprófanir á Keflavíkurflugvelli á nýjustu vél Boeing, B787 Dreamliner.
Boeing 787 þotan hefur verið í flugprófunum síðustu mánuði og eru fimm þotur þegar farnar í loftið og sú sjötta bætist við fljótlega.
Randall Lee Neville segir að tilgangurinn með prófunum á Íslandi sé að reyna þotuna í hliðarvindi og um leið hvernig sjálfstýring og önnur kerfi hennar virka við erfiðar aðstæður. Hann segir góðan árangur af verunni hér en þoturnar fimm hafa verið í margháttuðum prófunum, m.a. verið flogið frá Seattle í Bandaríkjunum þar sem verksmiðjurnar eru staðsettar, til Norðurpólsins til að reyna siglingatæki vélarinnar. Er það ein lengsta flugferð þotunnar til þessa og tók 16 tíma.
Tíu þotur framleiddar á mánuði
Gert er ráð fyrir að fyrsta B787 verði afhent fyrsta kaupandanum, All Nippon Airways, fyrri part næsta árs en Icelandair er einnig meðal kaupenda. Þegar framleiðslan verður komin í fullan gang árið 2013 verða framleiddar 10 þotur á mánuði. Þá verða boðnar tvær gerðir, B787-8 sem tekur 250 farþega, og B787-9 sem taka á 290 farþega en hún kemur á markað nokkru síðar.
Þoturnar fimm sem hafa verið í prófunum hafa alls flogið í 1.650 tíma í 540 ferðum. Prófanirnar ganga út á flug á sérlega heitum svæðum, ofurköldum svæðum, í sérstaklega mikilli hæð og síðan eru tæki hennar prófuð við ýmsar erfiðar aðstæður eins og hérlendis í hliðarvindi.
Randall Lee Neville segir að prófunum sé ekki lokið og framundan sé meðal annars að fljúga með fulltrúa bandarískra og kanadískra loftferðayfirvalda, svo og fulltrúa EASA, flugöryggisstofnunar Evrópu.
Hann vildi að lokum koma á framfæri sérstökum þökkum til íslenskra flugmálayfirvalda fyrir aðstoðina hérlendis en hann þekkir ágætlega til í Keflavík þar sem hann var í bandaríska hernum hér á áttunda áratug síðustu aldar. Boeing hefur áður prófað nýjar vélar sínar í erfiðum veðurskilyrðum á Íslandi, meðal annars B777 breiðþotuna fyrir nokkrum árum
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Ánægðir með íslenskar aðstæður/þetta er gott fyrir okkar flugvöll,og við ...
Innlent »
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Innlent Dreamliner þotan lent í Keflavík
- Fimmtudagur, 29. september 2011, Innlent Prófa nýja Boeing-þotu hér
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Drengurinn flytur til Eyja
- Miðvikudagur, 17. mars 2010, Innlent Jens P. Guðjónsson gullsmiður látinn
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Fær 50 milljónir í bætur
-
Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá






































