Morðvopnið ófundið
Morðvopnið hefur ekki fundist en kafarar köfuðu í gær og á föstudag í smábátahöfninni í Hafnarfirði í leit að hníf, sem notaður var til að ráða Hannes Þór Helgason af dögum 15. ágúst sl. Að sögn Friðriks Smára Baldurssonar, sem stýrir rannsókn málsins, er leit að hefjast í hádeginu að ný í höfninni.
Auk þess hefur lögregla og björgunarsveitarfólk gengið fjörur og hafa einhverjar flíkur sem hafa fundist verðið sendar í rannsókn en ekki er vitað með fullri vissu hvort þær tilheyra Gunnari Rúnari Sigþórssyni sem hefur játað að hafa myrt Hannes aðfararnótt sunnudagsins 15. ágúst.
Á blaðamannafundi í gær kom fram að málið telst í meginatriðum vera upplýst. Rannsókn málsins hefur verið mjög umfangsmikil og að henni hafa komið á fjórða tug starfsmanna hjá embættinu. Lætur nærri að rætt hafi verið við um allt að 100 manns í tengslum við rannsóknina. Enn eiga eftir að berast niðurstöður vegna sýna sem voru tekin í þágu rannsóknarinnar og send til rannsóknar erlendis.
Það voru þeir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari, Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn og Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sem gerðu grein fyrir málinu á blaðamannafundinum.
Gunnar situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni og rennur það út 24. september. Hann játaði morðið í gær og á föstudag en honum verður gert að sæta geðrannsókn. Lögreglan vildi í gær ekki upplýsa um hvort hann hefði gefið upp ástæðuna fyrir því hvers vegna hann myrti Hannes.





































