„Þetta var líklega ekki sá stóri“

„Eftirskjálftarnir eru í rénun og hér er allt að róast núna. En enn er yfirlýst neyðarástand og útgöngubann,“ sagði Hilmar Kjartansson læknir í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í morgun. Hann býr ásamt eiginkonu sinni Svövu Kristinsdóttur og börnum Birnu Líf og Árna Kristni í úthverfi borgarinnar Christchurch á Nýja-Sjálandi þar sem mjög öflugur jarðskjálfti, 7,1 á Richter, varð aðfararnótt laugardagsins.

Enginn hefur týnt lífi í hamförunum.

Finnum eftirskjálftana vel 

Snarpir eftirskjálftar urðu á svæðinu í  morgun og mældist sá öflugasti 5,1 stig. „Engar skemmdir hafa orðið á okkar húsi og á okkar svæði er rafmagn komið á og við höfum rennandi vatn. Við höfum sloppið ótrúlega vel miðað við marga aðra; við búum í hlíðunum og okkar hús er er byggt á kletti. Christchurch er byggð á sandi og leir, jarðvegurinn var svo blautur að úr varð hálfgerð leðja og mörg hús sukku að hluta til. Þess vegna eru skemmdirnar svona rosalega miklar. Ég veit að í nokkrum hverfum í borginni er fólk enn án vatns en rafmagn er víðast komið á; alls staðar nema í miðbænum, held ég megi segja.“

Hilmar segir þau hafa fundið mjög vel fyrir eftirskjálftunum í dag. „Krakkarnir eru orðnir sjóaðir í þessu. Um leið og þau finna minnstu skjálfta eru þau fljót að fara undir borð; ég held satt að segja að þau séu ekki hrædd heldur finnst þeim þetta mikið sport!“

Reiknað með enn öflugri eftirskjálfta

Hann segir fólk halda að enn geti komið stór eftirskjálfti, jafnvel um 6 stig á Richter og allir séu því í startholunum. „Og vísindamenn telja að skjálftinn sem reið yfir á föstudaginn sé líklega ekki sá stóri sem lengi hefur verið beðið eftir, sem er merkilegt. Þessi var á öðru misgengi, sem raunar var ekki vitað um. Annað misgengi er í fjallgarðinum og þar er reiknað með mun stærri skjálfta á næstu áratugum. Spennan á þeim flekamótum er nú stöðugt mæld og rýnt í hvort stór skjálfti gæti orðið þar á næstunni. Hann yrði væntanlega uppi í fjöllunum; fjallgarðurinn liggur alveg niður eftir suðureyjunni og ef skjálftinn yrði beint í vesturátt frá Christchurch er það ekki nema í um það bil 150 kílómetra fjarlægð frá okkur. Sérfræðingar segja að hann gæti orðið að minnsta kosti 10 sinnum kraftmeiri en sá sem reið yfir á föstudaginn og þá er líklegt að hér yrðu miklar skemmdir.“

Fram hefur komið, að sögn Hilmars, að „sá stóri“ komi venjulega á um það bil 300 ára fresti og nú séu einmitt um 300 ár liðin frá þeim síðasta. „Skekkjumörk eru talin um það bil 50 ár.“ Talið er að „sá stóri“ gæti orðið rúmlega 8 á Richter og jafnvel rúmlega það.

Fólk sjóði allt vatn

Hilmar segir mælst til þess að alls staðar í borginni sjóði fólk vatn, jafnvel það sem kemur úr krananum því leiðslukerfi hafa víða skemmst. „Það er álitið að vatnið getið verið mengað. Nú er spáð ansi kröftugum stormi og óttast að byggingar sem eru laskaðar geti hrunið þegar hvessir.“ Nefndar eru í því sambandi margar sögulegar byggingar í borginni, hlaðnar úr múrsteini. „Mörg þessara húsa eru 100-150 ára gömul,“ og fólki finnst það sorglegt ef þeir hrynji til grunna.

Enn er ekki byrjaði að hvessa í Christchurch en Hilmar segir mikið rok og rigningu á vesturströndinni. „Þetta er væntanlega á leiðinni yfir fjallgarðinn eins og er.“ 

Neyðarástand í nokkra daga enn

Hilmar segir ráð fyrir því gert að neyðarástandi verði áfram lýst í nokkra daga, margir vinnustaðir verði lokaðir á morgun og þegar hafi verið ákveðið að skólar og leikskólar verði ekki opnir fyrr en eftir miðja viku í fyrsta lagi. Skoða þurfi byggingar gaumgæfilega áður en starfsemi hefst á ný. Nú er sunnudagskvöld í Christchurch.

Fjölskyldan hefur þegar fyllt baðkarið af vatni, ef ske kynni að veitukerfið bili enn frekar. Svo sé um marga fleiri. „Ef við hættum að fá rennandi vatn getum við soðið upp úr baðkarinu og það ætti að duga í nokkra daga.“

Hann ræddi við vinafólk fjölskyldunnar inni í borginni í dag og segir það ekki jafn heppið og sína fjölskyldu. „Mjög miklar skemmdir urðu í götunni hjá þeim og hús sokkið að hlut til. Rafmagn komst reyndar á í dag en þau eru vatnslaus og holræsi virka ekki. Ekki er hægt að nota klósettið og þau urðu því að grafa kamar í skyndi úti í garði.“

Hilmar með börnunum Birnu Líf og Árna Kristni.

Hilmar með börnunum Birnu Líf og Árna Kristni.

Svava, Birna Líf og Árni Kristján.

Svava, Birna Líf og Árni Kristján.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
Opnaðu hliðið með símanum
Með einföldum búnaði er hægt að opna hlið og bílskúrshurðir með gsm síma. Hægt e...
Palomino Colt fellihýsi til sölu
Mjög vel með farið 9 feta Palomino Colt árg 2002 ásamt fortjaldi+dúk. Sólarsella...
Hreinræktaðir schäfer hvolpar til sölu
Erum með hvolpa undan margverðlaunuðum foreldrum ,mjaðma-og olnbogalos frí .Hvol...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...