Makríldeilan í hnút
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.isJógvan Jespersen, stjórnandi færeysku úthafsveiðisamtakanna (FPO), segir að til að lausn fáist í makríldeilunni þurfi allir málsaðilar að sýna vilja til að þoka málinu áfram. Vikið verður að deilunni á ráðstefnu um úthafsveiði í Færeyjum á morgun en næstu samningalotur fara fram í London í október.
Morgunblaðið ræddi við Jespersen símleiðis í kvöld en hann segir aðspurður að Evrópusambandið og Noregur hafi sýnt fulltrúa Færeyja í samningaviðræðunum lítinn vilja til eftirgjafar er viðræður fóru fram í Brussel og Ósló í júni og júlí í sumar.
Því hafi Færeyingar ekki átt annarra kosta völ en að ákveða makrílkvóta sinn, líkt og Norðmenn, Rússar, ESB og Ísland hafi áður gert.
En Færeyingar hafa krafist þess að makrílkvóti þeirra verði aukinn úr 35.000 tonnum í 85.000 tonn eða úr um 5% í 15% af heildar makrílkvótanum, sem er alls 570.000 tonn.
Mótmæla löndunarbanni
Færeyingar hafa jafnframt mótmælt löndunarbanni Norðmanna og Evrópusambandsins á makríl sem veiddur er af færeyskum skipum. Jespersen harmar bannið og segir að að með því ljúki áratuga langri samvinnu ríkjanna á þessu sviði.
„Makríldeilan hlýst af því að fjórir aðilar [Ísland, Færeyjar, Rússland, Noregur og ESB] geta ekki komið sér saman um kvótann sem Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur til. Noregur og ESB hafa veitt meira en 100% af leyfilegum heildar makrílkvóta sínum.
Við lítum svo á að Norðmenn og Evrópusambandið geti ekki ásakað aðra um óábyrgar veiðar á meðan staðið er svona að veiðunum. Norðmenn hafa veitt 59.000 tonn aukalega á árinu 2010 vegna kvóta sem þeim tókst ekki að veiða árið 2009,“ segir Jespersen og bætir því að Norðmenn hafi ekki haft lagalega heimild til að auka veiðarnar sem þessu nemur.
Þá hafi Norðmenn ekki ráðfært sig við Færeyinga vegna veiðanna.
Jespersen tekur svo fram að hafið umhverfis Færeyjar sé sneisafullt af makríl sem skipi orðið mikilvægan sess í hagkerfi landsins.
Innlent »
- Kjarval lækkar vöruverð
- Fresta innheimtu hesthúsaskatts
- Jón Ásgeir: Engir peningar teknir úr Sólarsjóði
- Með ekkert nema fötin utan á sér
- Hvorki fordómar né hatursáróður
- Tekjur lífeyrisþega hafa lækkað
-
Skart stöðvað á leið úr landi
- Jónas Þór: Lögmenn og réttarríkið
- Amnesty með samstöðufund
- Fagna inntökuprófum
- Lukkulegir lottóvinningshafar
- „Líflínan liggur í gegnum flugvöllinn“
- 8 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Furða sig á ummælum bæjarfulltrúa
- Boðið í heimsókn á þjóðarheimili
- Ögmundur gagnrýnir Sjónvarpið
- Samstaða er í skýjunum
- Páll Vilhjálmsson: Sértrúarsöfnuður
- Minni notkun, minna tjón
- Vilja áfram eiga aðild að stjórn lífeyrissjóða
- Erfitt að draga línuna
- Flughált í Flóanum
- Hefur ekki verið vísað til lögreglu
- Hálkublettir víða
- Sjö klukkustundir á sjúkrahús
- Soffía Anna: Lokun líknardeildar
- Maðurinn sætir geðrannsókn
- Eldri borgarar virkir á vinnumarkaði
- 3 nýir áfangastaðir Iceland Express
-
Brotinn en brattur brettakappi
- Þróunarmál rædd af ráðuneytisstjórum
- Margir vilja læra íslensku
- Séreignarsjóður skerðir ekki bætur
- Fundar áfram með Huang Nubo
- Styðja menntun í Úganda
- Lentu óvænt í heimafæðingu
- Samstaða með 21% fylgi
- Peningarnir vaxa á trjánum – fjárfesta í skógum jarðar
- Flughálka á Grindavíkurvegi
- Tillögur skila RÚV auknum tekjum
- Tveir réttindalausir í vímu
- Hælisleitendur laumuðu sér í skip
- Notfæra sér ný réttindi
- Sjóðsfélagar gagnrýndu forystu sjóðsins harðlega
- Flest fylltu sig við Grímsey
- Dæla CO2 aftur ofan í jörðina
- Hótað málsókn 20 sinnum
- 1.600 læra íslensku
- Éljagangur í suðvestanátt
- Aldagamlar hefðir í hættu
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 10. september 2010, Innlent Gagnlegar viðræður um makríl
- Þriðjudagur, 8. mars 2011, Innlent Viðræður um makríl á ný
- Mánudagur, 26. október 2009, Innlent Ísland ekki með á makrílfundi
- Þriðjudagur, 11. janúar 2011, Innlent Óeðlilegt að tengja ágreining um makríl við önnur mál
- Miðvikudagur, 27. apríl 2011, Innlent Færeyingar ítreka fyrri afstöðu í makríl-deilunni
-
Blaðamannafundur Lars Lagerbäck
-
Heimir: Erfiðara að velja Japanshópinn
-
Lagerbäck: Vildi taka þessa áhættu
-
Skart stöðvað á leið úr landi
-
Enn gýs í Eldhringnum
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
-
Brotinn en brattur brettakappi
-
Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz




































