Málflutningi lokið í Hæstarétti
Málflutningi varðandi myntkörfulán er lokið í Hæstarétti en hann hófst í morgun. Deilt er um hvernig gera eigi upp svo kölluð gengistryggð lán og reikna eftirstöðvar þeirra eða ofgreiðslu. Mjög fjölmennt var í Hæstarétti og dómsalurinn fullskipaður og þurfti að vísa fólki frá.
Sigurmar K. Albertsson, lögmaður Lýsingar, ítrekaði kröfur sem hann lagði fram í málinu í héraðsdómi í sumar um vaxtakjör á gengistryggðum lánum. Lýsing hafi verið í góðri trú þegar lánin voru veitt og talið sig vera veita lögleg lán. Minnti hann á að lánin hefðu verið veitt undir eftirliti eftirlitsstofnana allan tímann. Í þessu máli væri deilt um vaxtakjör og því hefði verið haldið fram að vaxtakjörin á þessum erlendum lánum ættu að haldast eftir að búið væri að dæma gengistrygginguna ólöglega. Það gæti aldrei átt við því þeir vextir hefðu ekki verið í neinu samræmi við íslenskan veruleika á þessum tíma.
Forsendur fyrir vöxtunum hefðu brostið með dómi Hæstaréttar í júní um að gengistryggð lán væri ólögleg. Það væri rökrétt og sanngjarnt að lántakandinn myndi taka á sig sambærileg vaxtakjör og tíðkuðust á íslenskum lánamarkaði á þessum tíma þegar lánið var veitt.
Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Guðlaugs Hafsteins Egilssonar lántakanda, segir að engin heimild sé fyrir því í lögum að breyta ákvæðum um vexti á lánunum. Því ættu þeir vextir sem voru á upprunalega lánasamningum að standa.
Það þýddi ekki fyrir lögmann Lýsingar að vísa til þess að einhverjir hagsmunir væru í húfi og einhver hundruð milljóna gætu tapast hjá lánafyrirtækjunum því ekkert hefði komið fram um að slíkt tap væri yfirvofandi. Þar að auki hefði aldrei verið upplýst hve mikið af skuldum íslensku lánafyrirtækjanna hefði verið afskrifað þegar þær voru endurreistar.
Gísli Baldur sagði við málflutninginn í morgun að þetta mál snerist um viðskipti tveggja aðila, fjármögnunarfyrirtækis og einstaklings, og um þau giltu mjög skýr lög. Ef vísa ætti til einhvers konar sanngirnissjónarmiða í dómnum eða hafa í huga að eins og fram hefur komið að móðurfélag Lýsingar, Exista, hefði á árunum fyrir hrun tekið stöðu gegn krónunni.
Innlent »
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 5. september 2010, Innlent Myntkarfan fyrir dóm á morgun
- Sunnudagur, 14. febrúar 2010, Innlent Yrði u-beygja hjá Hæstarétti
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Innlent Um tvö aðskilin mál að ræða
- Föstudagur, 2. júlí 2010, Innlent Tilmælin gefa hagfelldari lyktir en gengistrygging
- Þriðjudagur, 7. september 2010, Innlent Aldrei fallist á 16-21% vexti
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin





































