Segja Voga ekki glíma við skuldavanda

Vogar á Vatnsleysuströnd.

Vogar á Vatnsleysuströnd. mbl.is/HAG

Bæjarstjóri sveitarfélagsins Voga og formaður bæjarráðs segja það ekki rétt að sveitarfélagið glími við skuldavanda líkt og fram kemur í tölum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Þar kemur fram að skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af heildartekjum er 389% í lok síðasta árs. Vogar  er eitt þeirra 12 sveitarfélaga sem hafa fengið senda aðvörun vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu.

 „Í fréttum hefur komið fram að Sveitarfélagið Vogar sé meðal þeirra sveitarfélaga sem fengið hafi aðvörun frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og er óskað eftir upplýsingum um það hvernig sveitarstjórn hyggist bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélagsins.

Að gefnu tilefni vill Sveitarfélagið Vogar taka af öll tvímæli um það að sveitarfélagið á ekki við skuldavanda að stríða og þarf ekki að grípa til neinna ráðstafanna til að bæta þar úr.

Að halda slíku fram gerir það eitt að draga úr trúnaði þeirra sem til þekkja á eftirlitsnefndinni.

Sveitarfélagið Vogar telur að misskilnings gæti í athugasemdum eftirlitsnefndarinnar og að hún hafi ekki kynnt sér rekstur og stöðu sveitarfélagsins nægilega vel til að komast að þeirri niðurstöðu að fjárhagsstöðu þess gæti stefnt í óefni. Unnið er í því að svara eftirlitsnefndinni. Málið hefur þegar valdið sveitarfélaginu skaða og mikilvægt að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga leiðrétti þann misskilning sem hún hefur komið af stað um skuldastöðu Sveitarfélagsins Voga.

 Í árslok 2009 átti Sveitarfélagið Vogar handbært fé í formi bankainnistæðna upp á tæpa 1,4 milljarða.

Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins í árslok 2009 námu rúmum 2,1 milljarði króna, þar af nema skuldir við lánastofnanir einungis rúmum 298 milljónum (að stærstum hluta við Lánasjóð sveitarfélaga), eða um 52% af tekjum sveitarfélagsins.

Önnur skuldbinding sveitarfélagsins er reiknuð lífeyrisskuldbinding upp á 68 milljónir sem mun koma til greiðslu á næstu 50-60 árum og því fráleitt að um bráðavanda sé að ræða. Að auki er skuldbinding upp á 1,5 milljarð sem eru framtíðar leigugreiðslur til Fasteignar sem mun falla til á næstu 30 árum. Vart þarf að geta þess að allar greiðslur sveitarfélagsins til Fasteignar hf. eru í skilum og hluti af föstum rekstrartölum. Að draga slíkar skuldbindingar inn í umræðu um skuldavanda er í besta falli athyglivert.

Í bréfi eftirlitsnefndarinnar til sveitarfélagsins kemur fram að hún hafi þá skoðun að hlutverk sveitarfélags sé ekki að ávaxta fjármuni umfram þá sem nauðsynlegir eru í hefðbundnum rekstri en telur niðurgreiðslu skulda farsælli fjármálastjórnun til lengri tíma litið. Sveitarfélagið telur að ályktunin endurspegli það að nefndin hefur ekki kynnt sér rekstur þess síðustu ár. Þær tæplegu 300 milljónir sem sveitarfélagið skuldaði til lánastofnanna um áramót eru fyrst og fremst lán sem bærinn hefur ekki heimild til að greiða niður. Geta og vilji er hvorutveggja verið til staðar. Án frekari uppgreiðslu lána mun Sveitarfélagið Vogar verða skuldlaust við lánastofnanir eftir 10 ár.

Árið 2009 var handbært fé frá rekstri hjá Sveitarfélaginu Vogum 1.392 milljónir. Vart þarf að benda eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga á að þá hefur þegar verið gert ráð fyrir bæði greiðslu til Fasteignar hf og lífeyrisskuldbindingum. Þetta er það fjármagn sem er afgangs til

að mæta afborgunum og fjárfestingahreyfingum. Í þessu samhengi má benda á að áætlaðar afborganir langtímalána á þessu ári eru um 43 milljónir.

Sveitarfélagið Vogar fékk fyrst upplýsingar um það í fjölmiðlum að eftirlitsnefndin væri að senda frá sér bréf vegna ætlaðs fjárhagsvanda. Slíkt eru ámælisverð vinnubrögð og til þess fallið vekja upp vangaveltur um tilgang slíkra erinda.

Aðferðir eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga hafa haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir bæjarfélag sem hefur tök á að vinna sig hratt og örugglega úr kreppu sem það ber enga ábyrgð á. Það er vægast sagt stórfurðulegt að fá ákúrur frá eftirlitsnefnd fyrir það fyrirkomulag.

Vinnubrögð eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga eru ámælisverð og gera það eitt að skaða enn frekar ímynd eftirlitsstofnana á Íslandi.

Vogum 6. september, 2010

Hörður Harðarson, formaður bæjarráðs
Eirný Vals, bæjarstjóri Sveitarfélagins Voga"

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Garmin Nuvi 1490T GPS tæki til sölu
Raddleiðsögn 5,0'' snertiskjár, umferðamóttakari, akgreinavísir, bluetooth, hand...
Sparneytinn bíll óskast
Óska eftir að kaupa sparneytinn, óryðgaðan bíl á verðbilinu 200-500.000. Ekki e...
FRÁBÆRT SUMARHÚS TIL LEIGU
Frábært sumarhúsi á góðum stað. Stutt á 3 golfvelli. Frítt í einn völl. Uppl. í ...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...